Búnaðarrit - 01.01.1975, Síða 395
HRÚTASTNINGAR
367
og eldri og 12 veturgamlir. Þeir fullorðnu vógu 94,4 kg
að meðaltali eða 5,4 kg minna en jafngamlir lirútar í
sýslunni, og þeir veturgömlu vógu 75,1 kg að jafnaði,
sem er 6,5 kg minna en meðaltal sýslunnar. Fyrstu verð-
laun hlutu 18 lirútar eða 52,9%.
Af liyrndum lirútum, 3ja vetra og eldri, voru beztir
Varmi á Giljum frá Varmalæk, Garri Bessason á Refsstöð-
urn frá Hesti og Leir Leirason á Signýjarstöðum, einn-
ig frá Hesti. Varmi er úrvalshrútur, þéttbyggður og
ræktarlegur. Garri og Leir eru prýðisgóðar kindur, en
Leir þó í háfættara lagi. Dvergur á Refsstöðum og ICollur
í Stóra-Ási stóðu efstir af kollóttu hrútunum. Dvergur er
útlögugóður og sterkleg kind, og Kollur er ágætlega bak-
góður. Þistill Aðalheiðar í Hraunsási, sonur Snæs (68-835)
og Hnoss 1510 á Hesti, stóð efstur af tvævetlingum.
Hann er útmetin kind, holdgóður og jafnbyggður. Aðrir
voru Styggur 41 á Augastöðum, sem er ágætlega útlögu-
góður, og Hringur á Signýjarstöðum, sem er snotur kind.
Beztu veturgömlu hrútarnir voru Ljómi Bóasson og Leiri
Leirason á Norður-Reykjum frá Kópareykjum. Þeir eru
báðir prýðis góðar kindur, Leiri er samt í háfættara lagi.
Reykhollsdalshreppur. Sýningin var ágætlega sótt og
mikið um góða lirúta. Alls voru sýndir 80 hrútar, 59
tveggja vetra og eldri, sem vógu 97,6 kg að meðaltali og
21 veturgamall, og vógu þeir 84,1 kg að jafnaði. Fyrstu
verðlaun hlutu 58 hrútar eða 72,5% af sýndum hrútum,
og enginn var dæmdur ónotliæfur. Fáar lélegar kindur
voru á sýningunni og ánægjulegt að sjá, að vel hefur tek-
izt með val yngri lirútanna, sem bendir ótvírætt til þess,
að sauðfjárræktin er ástunduð af kostgæfni.
Af liyrndum hrútum, 3ja vetra og eldri, voru beztir
Sómi í Gröf frá Gullberastöðum, Gilli í Geirshlíð frá
Giljahlíð og Hnokki Laxason á Kjalvararstöðum. Sómi
er inetfé að gerð, rýmismikill og bakgóður. Hann var
talinn bezti hrútur sýningarinnar, lilaut lieiðursskjöld
Sf. Reykholtsdalslirepps. Stubbur 336 Guðráðs í Nesi og