Búnaðarrit - 01.01.1975, Síða 457
NAUTGRIPARÆKTARFÉLÖGIN
429
fullmjólkandi og lieilsárs kúa var 3835 kg. Nemur sú
lækkun 71 kg. Mjólkurfita lækkaSi úr 4,15% í 4,08% og
meðalafurðir, reiknaðar sem kg mjólkurfitu, voru 156
kg og höfðu lækkað um 6 kg frá fyrra ári.
Skýrslur úr 36 félögum voru gerðar upp méð eldri
aðferðum, sjá töflu I, A. Fullmjólkandi kýr í þessum
félögum voru 4110, og mjólkuðu þær að meðaltali 3951
kg, sem er aðeins 2 kg minna en meðaltal úr 57 félögum,
sem gerð voru upp á sama liátt árið áður. Mjólkurfita
var 4,07% í stað 4,14% árið áður og fitueiningar 16081
eða 161 kg mjólkurfita. Meðalnyt reiknaðra árskúa var
3692 kg, sem er 61 kg lægra en í hinum 57 félögum árið
áður. Þessi lækkun í nyt reiknaðra árskúa, en ekki full-
mjólkandi kúa, bendir til þess, að afurðir kvígna (þ. e.
fyrsta og annars kálfs nyt) sé talsvert lægri en árið áður,
þótt það liafi ekki verið gert upp sérstaklega. Kjarn-
fóðurgjöf var 866 kg á fullmjólkandi kú og reiknast af
2449 kúm. Mjólkurfita reiknast af 4056 fullmjólkandi
kúm úr sömu félögum.
Skýrslur úr 43 félögum voru gerðar upp í skýrsluvélum
nú, en úr 17 félögum fyrir árið 1972. Eru niðurstöður
úr þessum félögum hirtar í töflu I, B. Meðalnyt 7213
lieilsárs kúa í þeim var 3769 kg, sem er 48 kg minna en
meðalnyt 3647 lieilsárs kúa árið áður. Mjólkurfitan lækk-
ar álíka mikið og hjá kúnum í töflu I, A. Var liún 4,09%
í stað 4,18% árið áður. Afurðir lieilsárs kúnna, reiknaðar
í kg mjólkurfitu, voru 154 kg, og er það lækkun um 6 kg
frá 1972. Meðalnyt reiknaðra árskúa var 3682 kg, sem
er lækkun um 49 kg. Kjarnfóðurgjöf reiknaðist 778 kg
á heilsárs kú og 769 kg á reiknaða árskú. Hjá þessum 43
félögunt lækkaði kjarnfóðurgjöf á árinu, en liækkaði
hins vegar lijá þeim 36 félögum, sem tafla I, A nær yfir.
Er ]»að sennilega vegna þess, að ónákvæmni gæti enn í
vélskýrsluhaldinu um fjölda þeirra kúa, sem kjarnfóður-
gjöf er reiknuð af.
Þau atriði úr skýrslum félaganna, sem fjallað verður