Búnaðarrit - 01.01.1975, Síða 373
HRÚTASÝNINGAR
345
er 139,4 mm. Annar í röð var ÓSinn Trausta á Bjarnar-
gili, frá Kvíabekk, stór með mikil hold á baki, og lær-
vöðvi er harður upp í klofinu, en nær of skammt niður
á legginn. Freyr Péturs á Hraunum er hetjukind, 7 vetra
gamall og lieldur sér vel. Dropi Dropason Steingríms í
Stórliolti var sendur á lréraðssýninguna sem varahrútur
Þrasa, sem ekki kom.
Haganeshreppur. Sýndir voru 29 hrútar. Þeir fullorðnu
voru 2,9 kg léttari og þeir veturgömlu 2,4 kg léttari en
jafnaldrar þeirra í héraðinu. Af 24 lirútum 2ja vetra og
eldri lilutu 5 I. verðlaun eða 20,8%, en enginn vetur-
gamall. Af 8 tvævetlingum lilaut aðeins einn I. verðlaun,
Stubbur Arnar á Ökrum, ættaður frá Vestara-Hóli. Stubb.
ur er ágæt kind, liefur þróttmikinn haus, er jafnvaxinn
og holdgóður, en fremur holstutlur, með mikla, en gula
ull. Af eldri hrútum var Smári Páls í Nesi beztur. Smári
er afbragðskind, ræktarlegur, lioldgóður á baki og í lær-
um, en hefur tæplega nóg hold á mölum. Pjakkur Páls
á Mið-Mói, 6 vetra, er sterk lioldakind með afbragðs læri.
Kollur Jökulsson 819 Lúðvíks á Sigríðarstöðum er hold-
mikill og bakbreiður, en grófbyggður með of lin læri.
Féllshreppur. Sýndir voru fáir hrútar og ljótir. Full-
orðnu lirútarnir voru 1,2 kg þyngri, en þeir veturgömlu
12,7 kg léttari en jafnahlrar þeirra í héraðinu og léttastir
af veturgömlum lirútum í Skagafirði. Enginn eins eða 2ja
vetra hrútur lilaut I. verðlaun, og sýnir það glöggt, liversu
lélegt uppeldi er á lambhrútum í lireppnum. Af 10 hrút-
um 2ja vetra og eldri hlutu 2 I. verðlaun. Beztur var
Bjartur Spaksson Eggerts á Mýmm. Bjartur er lioldgóður
á baki, en grófur og háfættur. Flóki Jóliannesar á Skálá
er líkur Bjarti, en verri í lærum.
Hofshreppur. Sýningin var sæmilega sótt og alls sýndir
38 hrútar. Þeir fullorðnu voru 0,9 kg léttari og vetur-
gamlir 1,7 kg léttari en jafnaldrar þeirra í liéraðinu.
Af 22 hrútum 2ja velra og eldri hlutu 7 I. verðlaun eða
31,8%, en af 16 veturgömlum hlutu 3 I. verðlaun eða