Búnaðarrit - 01.01.1975, Page 140
112
BÚNAÐARRIT
bætur ekki nægja til að ná grundvallarverði á kjöti og
mjólk. Sú spurning lilýtur að vakna, þegar ofangreint
er haft í huga, hvort við, sem störfum sem ráðunautar
lijá Búnaðarfélagi Islands, eigum að taka mið af horfum í
markaðs- og efnahagsmálum landbúnaðarins. Er það t. d.
raunliæft að livetja til aðgerða, sem leiða til aukinnar
framleiðslu, þegar mikil umframframleiðsla er og jafn-
vel liætt á, áð ekki náist fullt verð? Það er ekki ætlunin
að ræða þessi mál hér, en þó þótti mér rétt að minnast
á þetta.
Fjárrœktarfélögin 1972—’73. Greidd voru framlög til
89 fjárræktarfélaga fyrir starfsemi ársins 1972—’73, en
framlag var greitt til 83 félaga 1971—’72, en 3 til viðbót-
ar voru starfandi það árið, þannig að aukningin er raun-
verulega 3 félög. Eftirtalin 4 félög sendu skýrslur og nutu
framlags fyrir starfsárið 1972—’73, en sendu ekki skýrsl-
ur árið 1971—’1972: Sf. Reykhólasveitar, Sf. Norðri, Fells-
og Óspakseyrarhreppi, Strandasýslu, Sf. Lýtingsstaðahr.,
Skagafirði, og Sf. Kyndill, A.-Landeyjum, Rang. Eitt fé-
lag, Sf. Egilsstaða og Eiða, er sendi skýrslur og naut fram-
lags 1971—’72, sendi ekki skýrslu fyrir þetta ár.
Skýrslufærðar ær 1972—’73 voru samtals 60.552 eða
6.689 fleiri en árið áður. Framlag var greitt á 1.321 I.
verðlauna lirút og á 35 hrúta, sem lilotið höfðu góðan
afkvæmadóm.
Afkvœmarannsóknir, sem nutu framlags samkvæmt bú-
fjárræktarlögum, voru gerðar á 6 stöðum 1972—’73, eins
og hér segir:
1. í Bjarnarhöfn, Snæfellsnesi ............. 7 hópar 156 ær
2. Hjá Sf. Kirkjubólshr., Strand..... 17 — 411 —
3. Hjá Sf. Lónsmanna, A.-Skaft............................ 7 — 140 —
4. Hjá Sf. Mýrahrepps, A.-Skaft....... 5 — 119 —
5. Hjá Sf. Borgarhafnarhr., A.-Skaft. 10 — 225 —
6. Á Hesti, Borgarfirði .................... 31 — 448 —
Samtals 77 hópar 1.499 ær