Búnaðarrit - 01.01.1989, Page 23
Jarðræktin
I. Skýrsla Óttars Geirssonar
Jarðabætur. Eins og mörg undanfarin ár hef-
ur eitt aðalstarf mitt hjá Búnaðarfélagi
íslands verið áð fylgjast með framkvæmd
jarðræktarlaga og sjá um útreikninga á jarða-
bótaframlögum, sem veitt eru samkvæmt
þeim.
Reglugerð um jarðrækt hefur ekki verið
gefin út eftir að lögin frá 1987 tóku gildi og er
töluvert um fyrirspurnir um það, hvernig
túlka beri lögin. Eins hefur verulegur tími
farið í það að svara fyrirspurnum um það,
hvenær vænta megi þeirra framlaga, sem lög
gera ráð fyrir að greidd séu fyrir jarðabætur.
En dráttur hefur orðið á því að framlög hafi verið greidd vegna þess, að á
fjárlögum hefur verið mun lægri upphæð en þurft hefur.
Yfirlit yíir þær framkvæmdir, sem hlutu framlag árið 1987, er sýnt á
meðfylgjandi töflu.
Fundir. Nokkra fræðslufundi sat ég á árinu. Má þar nefna, auk ráðu-
nautafundar, fræðslufund (seminar) um kal í túnum, sem haldinn var á
Akureyri dagana 11.-13. júní. Það var NJF (Norræna búfræðifélagið) sem
stóð að fundinum og voru fyrirlesarar frá Norðurlöndum og Kanada.
Þá sótti ég námskeið á Hvanneyri dagana 21.-28. ágúst um viðbrögð
ráðunauta og annarra starfsmanna landbúnaðarins við nýrri stöðu landbún-
aðar á íslandi. Leiðbeinandi var Torben Andersen frá Danmörku.
Auk þess kom ég á ýmsa starfsfundi á árinu t.d. með ráðunautum Bsb.
Suðurlands og skógarvörðum á sambandssvæðinu hinn 15. mars, þar sem
umræðuefnið var skjólbelti, m.a. hvernig staðið skyldi að gerð þeirra og
áætlunum um þau svo að til þeirra fengist framlag samkvæmt jarðræktarlög-
um.
Ferðalög. Ferðalög voru lítil. Ég fór þó tvisvar á Snæfellsnes að mæla fyrir
framræsluskurðum. Ég kom á 10 bæi og mældi fyrir um 6 km af nýjum
skurðum auk þess sem ég ráðlagði um upphreinsanir úr gömlum skurðum.
Svo til allur sá skurðgröftur var í túnum eða í jaðri þeirra.
Annað. Við Matthías Eggertsson ritstýrðum í sameiningu Handbók
bænda og fer töluverður tími í það síðari hluta ársins. Ein grein eftir mig
birtíst í Frey og ég flutti einn útvarpsþátt á árinu.
Óttar Geirsson
21