Búnaðarrit - 01.01.1989, Side 29
Æðarrækt.
Dúntekja hefur heldur verið að aukast undanfarin ár, sem yfirleitt hafa
verið æðarvarpi hagstæð. Þó að illviðri í júní og júlí s.l. spilltu talsvert
nýtingu æðardúns á Vesturlandi og Vestfjörðum kom varpið yfirleitt vel út á
s.l. ári. Verð á æðardún hækkaði talsvert á árinu og eftirspurn erlendis er
mikil og allur dúnn seldist nú jafnóðum og hann var tilbúinn til útflutnings.
Eins og undanfarin vor heimsótti ég allmarga æðarbændur og aðra
áhugamenn um æðarvarp, bæði þá sem beinlínis óskuðu eftir leiðbeiningum
og um Ieið aðra á viðkomandi svæði. Fyrri hluta maí fór ég ásamt Benedikt
Björgvinssyni um N.-Þingeyjarsýslu og Vopnafjörð. Auk fundarhalda
komum við á 25 bæi á þessu svæði. Varp er þarna víða í framför og nýverpi
frá síðari árum á allmörgum stöðum.
Seinni hluta maí fór ég á 6 bæi á Suðurnesjum og í nágrenni Reykjavíkur
með bandarískum líffræðingi, sem hér var á vegum veiðistjóra. Um
mánaðamótin maí/júní fór ég um Snæfellsnes og Dali og kom á 28 bæi, bæði
þar sem varp er nú þegar og eins þar sem verið er að réyna að koma upp
varpi. Varp á þessu svæði leit víða mjög vel út, þótt hret, sem síðar kom,
gerði allvíða talsverðan usla. Um miðjan júní fór ég svo um S.-Þingeyjar-
sýslu og Eyjafjörð og kom á 13 bæi. Um austurhluta svæðisins naut ég
fylgdar Atla Vigfússonar á Laxamýri, formanns æðarræktardeildar svæðis-
ins. Varp leit yfirleitt vel út á þessu svæði. Þó varð talsvert tjón á
varpstöðvum í Höfðahverfi vegna flóða í Fnjóská. Á ferðalögum til
æðarbænda s.l. vor kom ég alls á 72 bæi.
Eins og undanfarin ár hef ég átt mikið og gott samstarf við stjórn
Æðarræktarfélags Islands, setið alla stjórnarfundi þess og ritað þar fundar-
gerðir. Á aðalfundi félagsins í nóvember flutti ég skýrslu um störfin á árinu.
Eg sótti aðalfundi hjá æðarræktardeildunum í Borgarfirði og á Snæfellsnesi
og flutti þar erindi. Á ferð minni um Norðausturland voru haldnir 4 fundir
með æðarbændum á svæðinu, þar sem ég flutti framsöguerindi um æðar-
rækt. Ég sat tvo fundi með nefnd þeirri, sem fjallar um aðferðir við fækkun
máva og hrafna, en vonir standa til að sú nefnd fari senn að ljúka störfum.
Þá sat ég aðalfund Samtaka selabænda í nóvember. Eins og undanfarin ár
kenndi ég æðarrækt við Bændaskólann á Hvanneyri.
Ás.l. ári skrifaði ég tværgreinar umæðarrækt í Frey. Aðra um dúntekju á
Islandi, en hina ásamt Páli Hersteinssyni um tilraun með háspennta
rafgirðingu um æðarvarpið á Ferstiklu. Ég tók saman fréttatilkynningu frá
aðalfundi ÆI, bæði fyrir fjölmiðla og félagsmenn ÆI. Einn búnaðarþátt sá
ég um í ríkisútvarpi, sem fjallaði um æðarrækt, ásamt því að kynna greinina
í öðrum fjölmiðlum, en fjölmiðlar sýna æðarrækt yfirleitt talsverðan áhuga.
Á s.l. vori settu ábúendur á Ferstiklu í Hvalfirði upp háspennta rafgirð-
ingu í kring um æðarvarp sitt, til að verjast ágangi frá tófum, en tófa hafði
leikið varpið mjög grátt vorið 1987. Við Páll Hersteinsson, veiðistjóri,
27