Búnaðarrit - 01.01.1989, Page 35
sambandsins og kvenfélaga á svæðinu og leiðbeindi bændum um skipulag
garða í kringum hús sín.
Rétt eins og á síðustu árum tók ég virkan þátt í starfi NJF. Ég á sæti í
aðalstjórn „Sektion III-Hagebruk“ og í stjórn grænmetisdeildarinnar. Á
grundvelli þessa samstarfs átti ég þess kost að sækja 4 fræðslufundi í júní í
Noregi, um plöntulýsingu, loftslagsstýringu, uppeldi grænmetis og um
samræmingu afbrigðatilrauna í útigrænmeti. Ég hlaut styrk til þessarar
ferðar frá Búnaðarfélagi íslands, sem ég þakka hér með. Ennfremur hef ég
starfað með samnorrænni nefnd um vörumeðhöndlun útigrænmetis.
í framhaldi af Noregsferð minni kom norskur garðyrkjusérfræðingur,
Gudmund Balvoll, hingað til lands í einkaerindum og hélt hér fræðslufund
um geymslu grænmetis. Var sá fundur mjög vel sóttur af garðyrkjubændum
og öðrum.
Ekki vannst mikill tími til ritstarfa á árinu. Þó skrifaði ég 5 greinar til
birtingar í Garðyrkjufréttum: Um það markverðasta á blómasýningunni í
Aalsmeer 1987; afbrigðaprófun og ræktun íssalats; afbrigðaprófun í
hvítkáli; agryldúk yfir blómkáli og áhrif mismunandi jarðvegs-upphitunar-
aðferða í blómkáli. Auk þess átti ég eina grein í Handbók bænda 1988 um
ólífræn ræktunarvandamál í gúrkum.
Mikið var um að gefa þyrfti umsagnir vegna ýmiss konar framkvæmda til
Stofnlánadeildar landbúnaðarins, svo og til Eiturefnanefndar vegna um-
sókna um eiturleyfisskírteini. Einnig tók ég út nokkrar framkvæmdir vegna
umsókna um jarðræktarstyrki, svo og nokkrar matsgerðir vegna ræktunar-
tjóna.
Eins og undanfarin ár hef ég átt mjög gott samstarf við ýmis félagasamtök
garðyrkjumanna eins og t.d. Samband garðyrkjubænda, Sölufélag garð-
yrkjumanna, Blómamiðstöðina og Blómaheildsöluna og hef unnið nokkur
verkefni í samvinnu við þessa aðila. Má þar t.d. nefna greinargerð um styrki
til garðyrkjubænda í Noregi, sem birtist sem fylgiskjal með tillögu til
þingsályktunar um könnun á rekstrarskilyrðum garðyrkju og ylræktar. í
desember vann ég skýrslu um framleiðsluverðmæti og afföll innlendrar
framleiðslu afskorinna blóma og innflutning þeirra í júní - okt. 1988. í
byrjun október tók ég saman yfirlit yfir birgðir innlendrar framleiðslu
útigrænmetis, sem síðar var notað til kvótaskiptingar.
Að lokum vil ég þakka öllum garðyrkjubændum og öðru samstarfsfólki
mínu góða samvinnu á árinu.
6. janúar 1988,
Gardar R. Árnason
3
33