Búnaðarrit - 01.01.1989, Page 44
mikil mjóik af innlendu fóðri eftir hvern grip hér á landi. Ástæður þessa eru
vafalítið margar. Veigamest þó að skilyrði til fóðuröflunar voru góð bæði
árin 1986 og 1985 og því jafnbetra fóður en nokkru sinni áður. Einnig er
fullvíst að kúastofn sá, sem nú er í landinu, er getumeiri en nokkru sinni
áður og á það tvímælalaust sinn þátt í þessurn árangri. Þar er um að ræða
árangur af samræmdu ræktunarstarfi í nautgriparæktinni hér á landi á
síðustu áratugum.
Með ársuppgjöri fyrir árið 1987 voru bændum að þessu sinni sendar
ýmsarítarlegri tölurúrskýrslunum en áður hefur verið. Það voru upplýsing-
ar um framleiðslu búsins eftir árstímum, afdrif gripa, og frjósemi kúnna
ásamt fleiru. Vonandi koma þessar upplýsingar að gagni, þar sem farsæla
bústjórn verður að byggja á því að nota þær upplýsingar, sem fyrir hendi eru
um búreksturinn sjálfan, til að leita að bláþráðum hans og reyna að styrkja
þá.
Auk vinnslu á skýrslum nautgriparæktarfélaganna er margháttuð önnur
skýrsluvinnsla í nautgriparæktinni, sem allt eru þó mun minni verkefni að
umfangi, en tengjast þó á einn eða annan hátt skýrsluhaldinu.
Nautgripasýningar. Skoðun á kúm samkvæmt búfjárræktarlögum fór á
árinu 1988 fram á Norðurlandi. Ég var aðaldómari á öllum þessum
sýningum. Kýr eru allar skoðaðar heima á búunum. Lögð er áhersla á að
þessi skoðun geti farið fram á meðan kýr eru enn bundnar á bás.
Sýningarnar byrjuðu um miðjan aprílog varþeim aðfullu Iokið 1. júní. Mér
til aðstoðar voru í hverju héraði þeir héraðsráðunautar, sem sinna naut-
griparækt á hverju svæði. Samtals voru skoðaðar 2227 kýr á 329 búum.
Þetta er mesta þátttaka í sýningarstarfi á einu ári um áratuga skeið og
líklega meiri en nokkru sinni ef einnig er tekið tillit til að jafnhliða skoðun
kúnna fer fram skoðun á kvígum, sem ekki eru taldar með í þessum tölum.
Kvíguskoðun. Á hverju ári fer fram skoðun á ákveðnum fjölda dætra
þeirra nauta, sem koma til afkvæmadóms við næstu áramót. Á árinu 1988
voru skoðaðar dætur þeirra nauta Nautastöðvarinnar, sem fædd voru árið
1982. Þetta voru samtals 19 naut. Stefnt er að því að skoða hið minnsta 30
dætur undan hverju nauti. Þessi skoðun á kvígum fer fram jafnhliða skoðun
kúnna. Nokkrar kvígur undan þessum nautum höfðu verið skoðaðar við
kúasýningar á Suðurlandi árið 1987. Þegar skoðun á kúm var lokið á
Norðurlandi höfðu komið til skoðunar samtals 655 dætur þessara nauta. Þó
að nokkuð skorti á æskilegan lágmarksfjölda dætra undan þrem nautum var
ákveðið að láta þar staðar numið, þar sem sýnt þótti að ekkert þessara nauta
mundi reynast það vel að það kæmi til áframhaldandi notkunar.
Kynbótanefnd. Kynbótanefnd erfalin yfirstjórn með framkvæmd nauta-
vals á Nautastöð Búnaðarfélags Islands. Nefndin hélt á árinu þrjá fundi.
Meginfundur nefndarinnar er haldinn í byrjun febrúar strax og fyrir liggur
uppgjör á skýrslum nautgriparæktarfélaganna frá næstliðnu ári. í febrúar
42