Búnaðarrit - 01.01.1989, Page 48
framhaldi þess var nefndinni falið áframhaldandi starf. Á vegum nefndar-
innar var m.a. fundað með stjórnum allra búnaðarsambanda í landinu og
einnig með starfsmönnum þeirra. Nefndin skilaði skýrslu um störf sín til
ráðherra 17. nóvember. Ljóst er að þau málefni, sem þarna var fjallað um,
munu verða til umræðu hjá bændasamtökunum á næstu misserum.
Pá starfaði ég sem formaður í nefnd, sem skipuð var síðla árs 1987 að
tilhlutan Framleiðsluráðs til að fjalla um ýmis vandamál, sem tengjast
fitusöfnun í dilkakjöti og mati á fitu í dilkakjöti. Nefndin lauk starfi sínu í
ágúst og skilaði þá skýrslu um störf sín til Framleiðsluráðs.
Eg vann í vinnuhópi ásamt Katli Hannessyni, Hauki Halldórssyni og
Hákoni Sigurgrímssyni, sem fjallaði um gagnaöflun vegna vinnu við
þróunaráætlun þá, sem hátíðarfundur búnaðarþings 1987 samþykkti.
Ég sit eins og áður fundi samstarfsnefndar Samtaka mjólkuriðnaðarins
(SAM) og Framleiðsluráðs, þar sem fylgst er með framkvæmd á mjólkur-
hluta búvörusamningsins.
Ég sit í nefnd á vegum SAM og Framleiðsluráðs, sem nefnd hefur verið
efnanefnd og fjalla á um verðlagningu mjólkur með tilliti til efnainnihalds
hennar. Nefndin kom til fyrsta fundar í desember, en stefnir að því að ljúka
störfum snemma á nýbyrjuðu ári. Verkstjóri nefndarinnar er Hólmgeir
Karlsson.
Þá vann ég sem aðstoðarmaður búfjárræktarnefndar á búnaðarþingi.
Auk þess þá hef ég mikið starfað með ýmsum starfsnefndum á vegum
Stéttarsambands bænda og Framleiðsluráðs, sem ekki verður hér talið.
Að lokum skal öllu samstarfsfólki hér í húsi og vítt urn land þakkað
ánægjulegt samstarf á nýliðnu ári. Sérstaklega ber að þakka góða samvinnu
við það fólk, sem störf mín hjá félaginu tengjast mest, sem eru auk
búnaðarmálastjóra Halldór Árnason, Guðlaug Eyþórsdóttir, Pétur Þór
Jónasson og Sigurgeir Þorgeirsson.
Á nýjársdag 1989,
Jón Viðar Jónmundsson.
46