Búnaðarrit - 01.01.1989, Blaðsíða 62
setningu reglugerðar nr. 224/1987 um mörk, markaskrár og takmörkun á
sammerkingu búfjár og þá sérstaklega við þau ákvæði hennar, sem kveða á
um skyldu til frostmerkinga hrossa með samræmdu númera- og táknkerfi
B.I. Við skiluðum álitsgerð okkar til stjórnar Búnaðarfélagsins þann 6/4 og
seint á árinu var Ólafi R. Dýrmundssyni, Pétri Hjálmssyni og mér falið af
stjórn Búnaðarfélagsins að ræða við fulltrúa frá Félagi hrossabænda um
framkvæmd á reglugerðarákvæðum um frostmerkingar hrossa. Pær viðræð-
ur standa nú fyrir dyrum.
Við Þorkell Bjarnason mættum á fundi stjórnar Búnaðarfélagsins 6/4 og
gagnrýndum það samkomulag, sem Búnaðarfélag íslands hafði þá nýverið
gert við Félag hrossabænda um að F.h. skyldi hafa umsjón með útflutningi
hrossa, gefa út upprunavottorð í nafni Búnaðarfélagsins og fleira. Alla
umsjón með útflutningi ber Búnaðarfélaginu lögum samkvæmt.
Nefnd sú, sem ég var skipaður í af landbúnaðarráðuneytinu og átti að
endurskoða reglugerð hrossakynbótabúsins á Hólum, lauk störfum á árinu.
Síðasti fundur hennar var haldinn 27/4 á Hólum. Að fundinum loknum var
landbúnaðarráðuneytinu sent uppkast að nýrri reglugerð fyrir kynbótabúið
ásamt með greinargerð.
Aðalfundur Hrossaræktarsambands íslands var haldinn á Húnavöllum
30/4 í boði Hrs. A-Hún. Þessar samkomur stjórna hrossaræktarsambanda
landsins og ráðunauta í hrossarækt eru afar jákvæðar. Þarna skiptast menn
á skoðunum og ráða ráðum sínum og sitja að lokum allir fagnað í boði þess
sambands, sem fundinn heldur. Þó þykir mér sem tækifærin hafi verið
vannýtt á þeim tveimur fundum, er ég hef setið, til stefnumörkunar í ýmsum
helstu málum, er varða framkvæmd hrossaræktarinnar. Svo sem umræða
um rekstrargrundvöll hrossaræktarsambandanna verði ríkisstyrkur afnum-
inn, leigugjald fyrir stóðhesta og endurgreiðsla til eigenda geldra mera og
svo frv.
Ég sat fund í kynbótanefnd Hólabúsins þann 22/10 og var það góður
fundur. Á Hólum er nú unnið að kynbótum á grunni fræðilegrar þekkingar í
hrossarækt, en þó með tilfinningu og innsæi hestamannsins. Haldið áfram á
þessari braut Hólamenn!
Dagana 4-5/11 sat ég ársþing Landssambands hestamanna í Reykjavík,
ræði ég það ekki frekar.
Formaður Félags hrossabænda boðaði mig á aðalfund félagsins í Reykja-
vík 18/11, en vegna annagat ég ekki mætt á fundinn ogþótti mér það miður.
Eins og ég gat um í síðustu starfsskýrslu má margt gott um starfsemi og
starfsvettvang þessa félags segja. (Þó ber þar of mikla skugga á.) Ég tel að
samstarf ráðunauta Búnaðarfélagsins í hrossarækt og Félags hrossabænda
þurfi að vera sem mest og best, en til þess að svo geti orðið þarf að ríkja
gagnkvæm virðing fyrir og þekking á störfum sem unnin eru.
60