Búnaðarrit - 01.01.1989, Page 64
Önnur störf.
Sem fyrr starfaði ég lítillega fyrir Búnaðarsamband Eyjafjarðar, sinnti
hrossaræktinni á starfssvæði þess og starfaði með stjórn Hrossaræktarsam-
bands Eyfirðinga og Þingeyinga. Ég leiðbeindi nú einum nemanda við
Búvísindadeiidina á Hvanneyri með aðalverkefni um hrossarækt og kem til
með að kenna þar í vetur stúdentum á þriðja ári valgrein um hrossakynbæt-
ur. Þegar hef ég getið starfa viðkomandi eigin hestamennsku og hrossa-
haldi. I tengslum við þau störf sat ég aðalfund Félags tamningamanna þann
10/12, en á árinu Iauk ég fyrri hluta prófs félagsins og hyggst ljúka síðari
hlutanum nú í vor. Auðvitað bárust í tal á fundinum í almennum umræðum
efni tengd aðalstarfi mínu og einmitt hvað það starf varðar tel ég feng fyrir
mig að vera í félaginu. Þetta er félag fagmanna, þá ber að upplýsa um
hrossarækt og þannig berst þekkingin út til viðskiptamanna þessara bráð-
snjöllu knapa.
Framtíðarsýn.
Sjálfum þykir mér að nokkuð hafi unnist þann tíma, sem liðinn er frá því
ég hóf störf hjá Búnaðarfélaginu. Því miður sést þó alltaf betur og betur hve
mikið er ógert, á sumt af því hefur verið drepið hér framar; endurskipulagn-
ing skýrluhalds (folaldaskýrsluhaldið) og aukin þátttaka okkar sjálfra í
BLUP-reikningum svo eitthvað sé nefnt. Nú er þó brýnast að tengja betur
saman en nú er leiðbeiningaþjónustu í hrossarækt á landsvísu, rannsóknir í
faginu og kennslu. Hvað mitt eigið ráðunautsstarf varðar sé ég alltaf betur
og betur hve voniaust er að sinna því í hálfu árstíðarbundnu starfi á þann
veg, sem ég sjálfur get sætt mig við. Þessir hlutir verða að skoðast í samhengi
nú á nýbyrjuðu ári.
Ég þakka stjórn Búnaðarfélags íslands, búnaðarmálastjóra, samstarfs-
mönnum og öllum þeim, sem ég hef átt samskipti við á árinu, góða
samvinnu.
Akurcyri í janúar 1989,
Kristinn Hugason.
62