Búnaðarrit - 01.01.1989, Side 71
viðhorf til greinarinnar. Ég tel að umræðurnar hafi orðið atvinnugreininni
og ekki síst einstökum bændum til mikils skaða.
Allmikill tími fór á árinu í samtöl við loðdýrabændur vegna erfiðleika
þeirra og til að svara fyrirspurnum og veita tiltækar upplýsingar um
áðurnefndar stuðningsaðgerðir. Ennfremur fór ég margar ferðir út á land til
þess að aðstoða loðdýrabændur við að finna lausnir á þeirra inargslungna
vanda.
í október var haldið á Hólum í Hjaltadal 2ja daga endurhæfingar- og
samræmingarnámskeið fyrir héraðsráðunauta í lífdýraflokkun á vegum
bændaskólanna og Búnaðarfélagsins.
í samvinnu við héraðsráðunautana sá ég um að skipuleggja lífdýraflokk-
un í haust, eftir því sem þörf var á. I þetta sinn var reynt að gera
búnaðarsamböndin virkari í að skipuleggja og bera fjárhagslega ábyrgð á
flokkuninni hvert á sínu svæði. Með vaxandi umsvifum í loðdýrarækt
reynist með hverju ári erfiðara að sjá öllum loðdýrabændum fyrir lífdýra-
flokkun. Prátt fyrir umfangsmikið námskeiðaframboð á bændaskólunum
undanfarin ár, skortir almennt mikið á að bændurnir sjálfir taki nægilega
virkan þátt í flokkuninni. Lífdýraúrval er það mikilvægur þáttur í öllu
ræktunarstarfi, að þá sjálfsögðu kröfu verður að gera til bændanna, að þeir
leggi sig fram um að ná tökum á flokkuninni. Þar er ekki eftir neinu að bíða.
Hafin var útgáfa á frétta- eða „Ieiðbeiningabréfi“ á árinu, sem sent var
öllum loðdýrabændum endurgjaldslaust. Alls voru á árinu gefin út 11 bréf.
Efni þeirra var að mestu fengið úr viðlíka útgáfu eftir danska loðdýrarækt-
arráðunautinn Konnerup-Madsen, en það varstaðfært ogaukið eftir efnum
og ástæðum. Utgáfa fréttabréfsins tók býsna mikinn tíma, en hún mæltist
vel fyrir meðal loðdýrabænda, og fjölmargir þeirra lýstu ánægju sinni með
tiltækið.
í nóvembermánuði kom Konnerup-Madsen hingað til lands annað árið í
röð og dvaldi hér í tvær vikur. í samvinnu við héraðsráðunautana skipulagði
ég ferð hans um Iandið, en tilgangur hennar var einkum að flokka silfurrefi
og einnig var hann aðalleiðbeinandi á námskeiði í silfurrefaflokkun fyrir
ráðunauta, sem haldið var í Glæsibæ í Eyjafirði dagana 23.-24. nóvember.
Nautgriparœkt
Töluverður tími fór í að sinna ýmsum verkum í hefðbundnum búgreinum,
einkum nautgriparækt. Seinni hluta janúar mætti ég á fundi í Bændaklúbbi
Eyjafjarðar og flutti þar erindi um fóðrun nautgripa, og á útmánuðum hjá
nautgriparæktarfélögunum í Skagafirði og í Dalasýslu. Fjölmargir bændur
hafa á árinu leitað til mín varðandi nautakjötsframleiðslu og kálfaeldi.
Virðist mér sem áhugi fari vaxandi meðal bænda á að sinna þeirri
framleiðslu betur en áður. A árinu hafa margar fyrirspurnir borist frá
bændum víðs vegar af landinu varðandi fóðrun búfjár almennt, heyverkun,
69