Búnaðarrit - 01.01.1989, Síða 72
notkun íblöndunarefna við votheysverkun, grænfóðurverkun og fieiri skyld
málefni.
Könnun á starfsemi Búnaðarfélagsins
Eins og vikið er að í starfsskýrslu minni fyrir árið 1987 var ég kosinn í nefnd
á vegum ráðunauta Búnaðarfélagsins til að gera úttekt á starfsemi þess.
Forsaga málsins er sú, að ráðunautar félagsins sendu stjórn þess bréf, hvar
þeir lýstu áhyggjum sínum yfir boðuðum samdrætti í opinberum fjárveiting-
um til starfseminnar og iögðu til að komið yrði á fót starfshópi til að gera
úttekt á hvers konar starfsemi á þess vegum.
í bréfi ráðunautanna er lagt til að úttektin rniðist við eftirtalin atriði;
að gera sér grein fyrir verkefnum, sem nú eru unnin, hagnýtu gildi þeirra
hvers um sig fyrir búskap nútíðar og í framtíð.
- að kanna hvaða nýjum verkefnum er brýnt að sinna, hvar og af hverjum,
og e.t.v. í samstarfi við hvern.
- að gera sér grein fyrir með hvaða hætti fjármagna skuli einstaka þætti
starfseminnar.
- að kanna starfsmannaþörf á hverju fagsviði.
-að gera sérgrein fyrir,-m.t.t. ofannefndra þátta,-með hvaða hætti best
verði fyrir komið samstarfi og verkaskiptingu B.í. og búnaðarsamband-
anna og annarra aðiia.
- að kanna hvernig best má tengja starfsemi B.í. og búgreinasamband-
anna“.
Stjórn Búnaðarfélagsins tók hugmynd starfsmanna vel og hét samstarfi
um ieið og hún heimilaði að verkið skyldi unnið. Ljóst var að um nokkuð
tímafrekt verkefni yrði að ræða.
í nefnd starfsmanna voru kosnir Pétur Þór Jónasson, Óiafur R. Dýr-
mundsson og undirritaður. Nefndin hóf störf í árslok 1987, en aðalstarfið
fór fram á fyrstu mánuðum þessa árs.
A meðan á starfinu stóð voru nefndarmenn kallaðir fyrir stjórn félagsins
svo og fjárhagsnefnd Búnaðarþings til að skýra frá helstu niðurstöðum
könnunarinnar. Þær voru lagðar fram endanlega í byrjun júní. Ég tel að í
niðurstöðum könnunarinnar sé að finna mikilvægar grunnupplýsingar, sem
hægt sé að leggja til grundvallar við endurskoðun og endurskipulagningu á
aliri starfsemi Búnaðarfélagsins, sem orðin er aðkallandi.
Á þeim tíma, sem liðinn er frá því að úttektin fór fram, hefur því miður
lítið rofað til í málefnum Búnaðarfélagsins og framtíð þess virðist ennþá
jafn óráðin. Því miður fæégekki beturséð, ennsem komiðer, en að gögn úr
könnuninni hafi komið að iitlum notum og ég óttast að það starf hafi verið
til lítils unnið.
70