Búnaðarrit - 01.01.1989, Page 80
Kanínurœktarráðunauturinn.
Starf mitt sem kanínuræktarráðunautur
var fyrri hluta ársins einkum fólgið í að veita
upplýsingar og ráðleggingar í síma.
í janúar fór ég suður á Keflavíkurflugvöll
og tók á móti fulltrúum frá norsku og dönsku
kanínuræktarsamböndunum, þeim Ossian
Kidholm, kanínuræktarráðunaut Noregs, og
Lis Nyman, frá Danmörku, ásamt fylgdar-
liði. Ég hafði skipulagt ferð hingað til lands
fyrir þau.
Erindi þeirra var að kynna sér kanínurækt
hér á landi og vinnslu úr kanínufiðu hjá Fínuli
h/f, og kanna samstarfsmöguleika við ís-
lenska aðila, en engin verksmiðja er til á hinum Norðurlöndunum til vinnslu
á kanínufiðu.
Komið var á fundi þessara aðila með fulltrúum Landssambands kanínu-
bænda og Fínullar h/f. Mikill áhugi var hjá erlendu fulltrúunum á samstarfi
um vinnslu á fiðu frá þeim og jafnframt á sölu á unnum vörum frá
verksmiðjunni í þeirra heimalöndum.
Framleiðsluvörur Fínullar töldu þau vera í mjög háum gæðaflokki, og
sölumöguleika góða í löndum sínum.
Töluverð sala hefir verið á ullarvörum til þessara aðilaseinni hluta ársins.
Vænti ég góðs af þessari samvinnu í framtíðinni.
í mars mætti ég á fund hjá Bændaklúbbi Eyfirðinga og hélt erindi um
loðkanínurækt. Einnig síðar á árinu hjá Búnaðarsambandi Dalamanna í
Búðardal, og í nokkrum öðrum félögum og klúbbum. Þá hefi ég setið fundi
með stjórn Landssambands kanínubænda og aðalfund sambandsins. í júlí
sat ég aðalfund Kanínuræktarfélagsins Fífu að Húnavöllum, flutti þarerindi
og svaraði fyrirspurnum. í framhaldi af því heimsótti ég kanínubændur í
Húnaþingi, Skagafirði og Eyjafirði.
I september mætti ég á fund á Kópaskeri og heimsótti kanínubændur í
Þingeyjarsýslum. Þaðan fór égsömu erindaí Vopnafjörð, á Fljótsdalshérað
og í Öræfi.
Þá hefi ég unnið að gerð fræðsluefnis um loðkanínurækt, m.a. búnaðar-
þátt í Ríkisútvarpinu, grein um fóðrun kanína í Handbók bænda og hönnun
og gerð eyðublaða fyrir samræmt skýrsluhald fyrir kanínubændur. Ég hefi
Ingimar Sveinsson
78