Búnaðarrit - 01.01.1989, Síða 159
Því vonast þingið til, að umræða og athafnir í þessu nrikla þjóðþrifamáli
fari fram í anda hófsemi og raunsæis.
Rýrnun gróðurlendis snertir hins vegar bændur meir en aðra, og hafa
þeir tíðum haft frumkvæði í gróðurvernd, enda eru aðgerðir til úrbóta
samofnar atvinnu- og lífshagsmunum þeirra.
Því verður aldrei unnið að gróðurvernd og endurheimt Iandgæða með
góðum árangri nema í fullri sátt og samvinnu við bændur landsins og
félagssamtök þeirra.
4. Búnaðarþing felur stjórn Búnaðarfélags íslands að beita sér fyrir því, að
gerð verði kvikmynd eða vandað myndband, sem sýnir á sönnu mynd-
máli ástand gróðurs, landgræðslustarf og nýtingu landsins.
Mál nr. 7
Erindi stjórnar Búnaðarfélags íslands um ritun og útgáfu íslenzkrar land-
búnaðarsögu.
Málið afgreitt með eftirfarandi ályktun, sem samþykkt var með 22 sam-
hljóða atkvæðum:
Búnaðarþing beinir því til stjórnar Búnaðarfélags íslands að vinna að því
við Alþingi og ríkisstjórn, að veitt verði fé á fjárlögum til undirbúnings að
útgáfu íslenzkrar landbúnaðarsögu.
Fjárveitingar verði hliðstæðar við það, sem veitt hefur verið á fjárlögum á
undanförnum árum vegna útgáfu Safns til Iðnsögu íslendinga, það er til
greiðslu á launum ritstjóra, ritlaunum og skrifstofukostnaði.
Mál nr. 8
Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 45 16. apríl 1971, um
Stofnlánadeild landbúnaðarins, landnám, ræktun og byggingar í sveitum,
með síðari breytingum -59. mál 111. löggjafarþings.
Málið afgreitt með eftirfarandi ályktun, sem sanrþykkt var með 12 atkvæð-
um gegn einu að viðhöfðu nafnakalli:
Búnaðarþing leggur til, að frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 45
16. apríl 1971, um Stofnlánadeild landbúnaðarins, landnám, ræktun og
byggingar í sveitum með síðari breytingum, 59. mál 111. löggjafarþings,
verði ekki lögfest.
Þingið telur, að frumvarpið þurfi nánari skoðunar við, meðal annars hvað
varðar eftirfarandi:
1. Hvort stofnfjárreikningar dragi úr vanskilum við deildina og minnki
áhættu hennar vegna lánveitinga.
2. Hvað myndu stofnfjárreikningar auka lánamöguleika deildarinnar?
157