Búnaðarrit - 01.01.1989, Page 189
Mál nr. 37
Erindi Stefáns Halldórssonar og Sveins Jónssonar um frumvarp til búfjár-
rœktarlaga.
Afgreitt með máli nr. 30.
Mál nr. 38
Erindi Stefáns Halldórssonar og Sveins Jónssonar um tölvunámskeið.
Máiið afgreitt með eftirfarandi ályktun, sem samþykkt var með 25 sam-
hljóða atkvæðum:
Búnaðarþing felur stjórn Búnaðarfélags íslands í samráði við bændaskól-
ana að koma á fót tölvunámskeiðum fyrir bændur.
Æskilegast væri, að slík námskeið yrðu sem víðast heima í héruðum til að
auðvelda starfandi bændafólki að nýta sér þessa fræðslu.
GREINARGERÐ:
í gangi hafa verið tölvunámskeið á vegum bændaskólanna og jafnvel fleiri
aðila. Þessi námskeið hafa að sjálfsögðu nýtzt þeim bezt, sem næst voru
vettvangi. Því er hér lagt til, að reynt verði að færa námskeiðshaldið nær
bændum með því að flytja það út í héruðin.
Mál nr. 39
Erindi Bjarna Guðráðssonar ogJóns Kristinssonar um eiturefni í innfluttum
matvælum og eftirlit með gæðum og framleiðslu innfluttra vara.
Málið afgreitt með eftirfarandi ályktun, sem samþykkt var með 23 sam-
hljóða atkvæðum:
I
Búnaðarþing skorar á landbúnaðarráðherra og heilbrigðisráðherra að
beita sér fyrir því, að settar verði strangar reglur um innflutning á hvers kyns
matvælum, þar sem meðal annars komi fram eftirfarandi:
1. Gerð verði krafa um, að ferskleiki og meðferð innfluttrar matvöru verði
ekki síðri en í innlendri matvælaframleiðslu.
2. Innihald skaðlegra aukaefna í innfluttum matvælum, sem stafa kann af
mengun, notkun eiturefna gegn meindýrum eða plöntusjúkdóm, íblönd-
un lyfja eða rotvarnarefna, verði að hámarki hið sama og gerist við
matvælaframleiðslu hér á landi.
3. Geröar verði hliðstæðar kröfur til framleiðenda innfluttra matvæla og
gerðar eru af hálfu útlendinga gagnvart íslandi um umhverfi og gerð
húsa á framleiðslustað, klæðnað og heilbrigði þess fólks, sem vinnur að
187