Búnaðarrit - 01.01.1989, Síða 195
Auka-Búnaðarþing 1989
Samkvæmt kvaðningu stjórnar Búnaðarfélags íslands, hinn 12. apríl,
kom Búnaðarþing saman til aukafundar í Bændahöllinni í Reykjavík,
þriðjudaginn 18. apríl kl. 10:00 árdegis.
Viðstaddir þingsetningu í Búnaðarþingssal og við umræður til hádegis
voru meðal annarra aðstoðarmaður landbúnaðarráðherra, Alfhildur Ólafs-
dóttir, og flestir þeir alþingismenn, sem sæti eiga í landbúnaðarnefndum
Alþingis.
Forseti þingsins, Hjörtur E. Þórarinsson, bauð þingfulltrúa og gesti
velkomna um leið og hann setti þingið. Hann lýsti ástæðum til þingkvaðn-
ingar, en það var kvatt saman í samræmi við ákvörðun síðasta reglulegs
þings til að fjalla um frumvarp til breytinga á búfjárræktarlögum og
frumvarp til laga um umhverfismál, sem bæði höfðu verið lögð fram á
Alþingi hinn 10. apríl.
Forseti gerði því næst grein fyrir þeim sérstöku aðstæðum, sem þetta þing
hlyti að starfa við, en vegna verkfalls Félags íslenzkra náttúrufræðinga, sem
náði til allra ráðunauta Búnaðarfélags Islands að einum undanskildum,
treystu ráðunautarnir sér hvorki til að starfa fyrir þingið, né taka þátt í því á
neinn hátt. Þeir höfðu enda um það skýr fyrirmæli frá verkfallsstjórn.
Lesið var bréf frá fulltrúum ráðunauta, þar sem þeir hörmuðu, að þingið
skyldi vera kvatt saman, þegar þeim gafst ekki tækifæri til að leggja sitt af
mörkum við afgreiðslu mikilvægra mála landbúnaðarins.
Forseti kvað stjórn Búnaðarfélags Islands hafa talið brýnt að kalla þingið
saman og ekki tök á að fresta því vegna starfa Alþingis. Hann harmaði
fjarveru ráðunautanna. Þar sem ráðunautar gátu ekki starfað fyrir þingið,
voru kosnir úr röðum þingfulltrúa ritarar gjörðabókar þau:
Ágústa Þorkelsdóttir og
Sigurður Þórólfsson.
Fyrsti og annar varaforseti, ritarar, svo og fulltrúar í fastanefndir voru í
einu lagi kosnir þeir sömu og á síðasta þingi. Sérstakur skrifstofustjóri var
ekki tilnefndur.
Þingið sátu sömu fulltrúar og á síðasta þingi að því undanteknu, að Björn
Magnússon, Hólabaki, mætti sem varamaður Jóns Gíslasonar og að Jón
Guðmundsson, Óslandi, mætti ekki sökum anna við önnur störf, og hafði
hann ekki boðað varamann.
Áður en málum var vísað til nefnda, hafði Egill Bjarnason, formaður
milliþinganefndar, sem kosin var á síðasta þingi til að vinna að endurskoðun
búfjárræktarlaga, framsögu um það mál, sem var fyrsta mál þingsins. Eftir
framsöguræðuna voru almennar umræður til hádegis, og fylgdust alþingis-
menn úr landbúnaðarnefndum með þessum umræðum.
i.i
193