Búnaðarrit - 01.01.1989, Síða 208
starfsemi liðins árs. Landbúnaðarráðuneyti skal að fengnum tillögum
Búnaðarfélags íslands, tilkynna skiptingu framlaga milli búnaðarsambanda
og búgreina í síðasta lagi sex vikum eftir samþykkt fjárlaga.
13. gr.
Búnaðarfélagi íslands er skylt, að gefa búfjáreigendum kost á dómum á
búfé og/eða sérstöku mati á búfjárafurðum eða úrvalsgripum með reglulegu
millibili, þó eigi sjaldnar en fjórða hvert ár. Hlutaðeigandi búfjárræktar-
nefndir setja reglur um fyrirkomulag dóma og mats.
Ráðunautar skulu gegna dóms- og matsstörfum. Kostnaður að frátöldum
launa- og ferðakostnaði ráðunauta skal greiddur af þeim samböndum eða
félögum, sem í hlut eiga, sbr. 6. gr. Heimilt er þeim aðilum sem standa fyrir
sýningum að innheimta gjald, skv. gjaldskrá samþykktri af ráðherra, af
eigendum þeirra gripa sem dæmdir eru.
Sláturleyfishöfum er skylt að láta í té aðstöðu til þess að framkvæma
nauðsynlegar athuganir á föllum gripa, enda sé þeim gert viðvart um þær
við gerð áætlana um slátrun í viðkomandi húsi.
111. KAFLI
Um verndun séreinkenna í íslensku búfé og um útflutning búfjár.
14. gr.
Óheimilt er að flytja úr landi tímgunarhæft búfé, sæði eða fósturvísa án
leyfis landbúnaðarráðuneytis. Áður en heimilaður er útflutningur sam-
kvæmt þessari grein, skal ráðuneytið leita álits Búnaðarfélags fslands og
yfirdýralæknis á fyrirhuguðum útflutningi.
Sambönd og félög, skv. 7. gr., skulu eiga forkaupsrétt á því verði sem
tilgreint er í umsókn um útflutningsleyfi að þeim kynbótadýrum sem
Búnaðarfélag Islands telur óæskilegt að flutt verði úr landi.
15. gr.
Mynda skal sérstakan sjóð, Stofnverndarsjóð, er veiti styrki og lán til þess
að kaupa kynbótagripi sem ella kynnu að verða seldir úr landi. Kaupendur
tímgunarhæfs búfjár, sæðis eða fósturvísa, til útflutnings, skulu greiða í
sjóðinn allt að 20% af kaupverði þessa samkvæmt nánari ákvörðun
Iandbúnaðarráðherra.
Sjóðnum skal skipt í deildir eftir búfjártegundum og fer búfárræktar-
nefnd með stjórn hlutaðeigandi deildar.
Landbúnaðarráðherra setur reglugerð um upphæð stofnverndargjalda,
innheimtu, vörslu og ráðstöfun fjár Stofnverndarsjóðs að fengnum tillögum
Búnaðarfélags íslands.
206