Búnaðarrit - 01.01.1989, Side 217
Um 10. gr.
Greinin kveður á um að ríkissjóður greiði kostnað við stofnun sóttvarna-
stöðva vegna innflutnings búfjár og/eða erfðaefnis (sæðis eða fósturvísa).
Ákvæði er um, að landbúnaðarráðherra ákveði fjölda slíkra stöðva, umfang
í starfsemi þeirra og geri áætlun um rekstur stöðvanna í samráði við
búfjárræktarnefnd viðkomandi búgreinar.
Nú eru starfræktar tvær sóttvarnarstöðvar þ.e. sóttvarnarstöðin í Hrísey
og sóttvarnarbúið á Möðruvöllum, sem byggt var, og rekið er, vegna
innflutnings á loðdýrum. Reynslan af stofnun og rekstri þessara sóttvarnar-
búa sýnir að ríkissjóður verður að standa að þessari uppbyggingu og
aðstoða við rekstur. Það þýðir hins vegar ekki að rekstur þessara stöðva geti
ekki skilaö rekstrartekjum, sem gætu staðið undir rekstri og jafnvel
stofnkostnaði a.m.k. að hluta. Það byggist á því hvers eðlis þessar
sóttvarnarstöðvar eru, og hvert umfang þeirra er í stofnkostnaði og rekstri,
miðað við hugsanlegar rekstrartekjur. Ákvæði greinarinnar útiloka heldur
ekki að eitthvert fjármagn komi frá viðkomandi búgrein vegna stofnkostn-
aöar og rekstur sóttvarnarstöðvar. t.d. gegnum kjarnfóðurgjald. Því er
eðliiegt og nauðsyn að landbúnaðarráðherra ákveði framgang þessara mála
hverju sinni í samráði við hlutaðeig3ndi búfjárræktarnefnd og í samræmi við
þau lagaákvæði sem gilda hverju sinni, varðandi þann innflutning sem hér
um ræðir.
Um 11. gr
Greinin kveður á um heimild til handa búnaðarsamböndum og öðrum
samtökum sbr. 6. gr. aö innhcimta 0.7% gjald af grundvallarverði innveg-
innar mjólkur vegna kostnaöar við sæðingar mjólkurkúa.
Þetta ákvæði er óbreytt frá ákvæðum 7. gr. laga nr. 31/1973, a. lið 2.
töluliðar d. liöar greinarinnar.
Þá er ákvæði um, að greiða skuli úr ríkissjóði styrk vegna sæðinga
mjólkurkúa er nemur 95,00 kr. á sædda kú á verðlagi ársins 1988.
Verðuppbóf á þennan styrk skal ákveðin af landbúnaðarráðherra. Þetta er
hliðstætt ákvæði og í 7. gr. laga nr. 31/1973 b. lið 1. tölulið d. liðar
greinarinnar en er lækkun á styrk um 88,07 kr. á sædda kú.
Efnisbreyting er þó sú, að lög nr. 31/1973 kveða á uin að hliðstætt gjald
greiðist til rekstraraðila þ.e. dreifistöðva, í beinu hlutfalli við fjölda sæddra
kúa. en frumvarpiö gerir ráð fyrir að þessum stvrk verði varið til að jafna
flutningskotnað á sæði, þ.e. ferðakostnað frjótækna, á milli sambands-
svæöa.
Þar sem þetta er eina greinin í frumvarpinu sem tekur sértaklega til
einnar bút'jártegudar skal vakin athygli á því að þetta er eina búfjártegundin
þar sem tímgunin byggist nær algjörlega á sæðingum.
215