Búnaðarrit - 01.01.1990, Síða 17
sem í ljós kom aö starfsemin haföi farið út fyrir fjárhagsramma. Þá var
starfsmanni nefndarinnar sagt upp og hefur síðan verið unnið að því að ná
endum saman.
Starfsmaður markaðsnefndar aðstoðaði fiskeldisráðunaut B.í. við mark-
aðskönnun fyrir bleikju. Sjá nánar um það í skýrslu ráðunautarins.
Fulltriii B.I. í nefndinni er áfram Sigurgeir Þorgeirsson.
Milliþinganefnd til cið hafa umsjón með gerð heildaráœtlunar um þróun
landbúnaðarins til nœstu aldamóta. Nefndin er skipuð fulltrúum B.í.
kosnum á Búnaðarþingi 1988 og fulltrúum Stéttarsambands bænda. Störf-
um hennar mun lítið hafa miðað á árinu.
MHliþinganefnd til að gera tillögur um framtíðarskipan félagskerfis
landbúnaðarins skipuð 1988 í samræmi við ályktun Búnaðarþings. Hún
starfaði nokkuð það ár, en ekkert á síðasta ári.
Milliþinganefnd til að vinna að endurskoðun búvörulaga í samræmi við
álytkun Búnaðarþings 1988 er skipuð fulltrúum kosnum á Búnaðarþingi,
þeim Hermanni Sigurjónssyni, Bjarna Guðráðssyni og Stefáni Halldórs-
syni, og fulltrúum tilnefndum af stjórn Stéttarsambands bænda, þeim
Hauki Halldórssyni, Páli Lýðssyni ogSigurði Þórólfssyni. Nefndin hófstörf
sín á árinu, en hefur ekki lokið þeim.
Milliþinganefnd til að semja frumvarp að búfjárrœktarlögum. Búnaðar-
þing kaus í nefndina þá Egil Bjarnason, Ágúst Gíslason og Erlend
Halldórsson. Nefndin hafði mjög stuttan tíma til starfa, en lauk þeim um
páskaleytið þannig að frumvarp var tilbúið og ráðuneytið kom því fyrir
Alþingi 10. apríl. Um það fjallaði Auka-Búnaðarþing og kom á framfæri
breytingum, sem landbúnaðarnefndir Alþingis tóku allar til greina. Vegna
hins skamma tíma, sem var til stefnu, hvíldu störfin mest á formanninum
Agli Bjarnasyni, sem sat við dögum saman og samdi lagagreinar og
greinargerð. Við það naut hann og stuðnings ráðunauta, hafði gott samstarf
við landbúnaðarráðuneytið, en að sjálfsögðu allt í samráði viö nefndar-
menn sína.
Milliþinganefnd til að gera fullmótaðar tillögur um skipan leiðbeininga-
þjónustunnar í samræmi við ályktanir í málum nr. 3 og 20 á Búnaðarþingi
1989. í nefndina voru kosnir: Bjarni Guðráðsson, Egill Jónsson og Jón
Hólm Stefánsson. Jón Hólm var kosinn formaður nefndarinnar. Þessarar
nefndar hefur þegar verið getið hér að framan í sambandi við bændabók-
haldsmáliö. Auk þess vann hún fljótlega aðgerð tillagna um tekjustofn fyrir
búnaðaramböndin og B.í. og kom fastmótuðum tillögum um þaö efni til
þingmannanefndar undir forystu Alexanders Stefánssonar, alþm., sem
aftur lagði þær fyrir landbúnaðarráðherra það tímanlega fyrir þinglok á
síðasta vori, að vonast var til að ráðherra treysti sér til að flytja málið á
Alþingi. Það treysti hann sér hins vegar ekki til að gera.
Þetta mál hefur því tafist, en brýnt er aö vinna áfram að framgangi þess.
15