Búnaðarrit - 01.01.1990, Page 19
Guðmund Sigurðsson, Ólaf G. Vagnsson og Pál Sigbjörnsson. Formaður
var Sigurgeir Þorgeirsson, ráðunautur.
Sýningarnefnd hrossa starfaði samkvæmt 34. gr. eldri búfjárræktarlaga.
Búnaðarþing 1986 kaus í nefndina héraðsráðunautana Guðmund Sigurðs-
son og Steinþór Runólfsson. Fulltrúar Landssambands hestamannafélaga
voru Skúli Kristjónsson og Jóhann Þorsteinsson, en formaður Porkell
Bjarnason, ráðunautur.
Framangreindar þrjár nefndir leggjast niöur frá og með Búnaðarþingi
1990, sem kjósa á búfjárræktarnefndir samkvæmt nýju lögunum fyrir hverja
grein búfjárræktar.
Búfrœðslunefnd. Búnaðarþing kaus þá Ólaf R. Dýrmundssonog Gunnar
Þórarinsson ráðunauta í nefndina.
Stjórn Stóðhestastöðvarinnar í Gunnarsholti. Steinþór Gestsson og Þor-
kell Bjarnason eru fulltrúar B.í. í stjórninni. Sveinn Runólfsson erformað-
tir, en að auki eru þeir Einar E. Gíslason og Þórir ísólfsson í stjórninni
tilnefndir af Félagi hrossabænda og Landssambandi hestamannatelaga.
Fóðureftirlitsnefnd, sáðvörueftirlitsnefnd og áburðareftirlitsnefnd starfa
samkvæmt lögum um eftirlit með framleiðslu ogsölu þessara vara. Fulltrúar
B.í. í nefndinni í sömu röð voru Gunnar Guðmundsson, Óttar Gcirsson og
Björn Bjarnarson. Nefndir þessar hafa lítið starfað.
Loðdýranefnd starfaði ekki á árinu.
Samráðsnefnd um viðurkenningu nýrra býla og félagsbúa í samræmi við
ákvæði jarðalaga. Jónas Jónsson er fyrir B.í. í nefndinni.
Þátttaka í samtökum ineð öðrum þjóðum
Norrœnu bœndasamtökin (NBC). Stéttarsamband bænda, Búnaðarfélag
Islands, Framleiðsluráð landbúnaðarins, Samband sláturleyfishafa og Sam-
tök afurðastöðva í mjólkuriðnaöi mynda íslandsdeild NBC. Formaður
hennar er Haukur Halldórsson, varaformaður Jónas Jónsson og ritari
Gunnlaugur Júlíusson. Aðalfundur NBC var haldinn hér á árinu dagana
8.-11. ágúst.
Samtök norrœnna búvísindamanna (NJF). Fleslir af ráðunautum B. í. eru
í samtökunum og veitir félagið íslandsdeildinni nokkurn stuðning. Ráðu-
nautar hver fyrir sig gera grein fyrir störfum sínum í deildum og þátttöku í
fundum.
Búfjárrœktarsamband Evrópu (EAAP). Búnaðarfélag íslands og Rann-
sóknarstofnun landbúnaðarins eru aðilar að sambandinu. Ólafur R. Dýr-
mundsson, ráðunautur, annaðist samskipti við sambandið. Hann og Ólafur
E. Stefánsson sátu ráðstefnu EAAP á írlandi á árinu.
Samband nautgriparœktenda á Norðurlöndum (NÖK). Búnaðarfélag
2
17