Búnaðarrit - 01.01.1990, Page 43
Skýrsla Jóns Viðars Jónmundssonar
Eins og áður þá var starf mitt hjá Búnaðarfé-
lagi Islands aðeins hlutastarf. Eg starfaði eins
og á árinu 1988 einnig í hlutastarfi hjá Fram-
leiðsluráði landbúnaðarins, en þann 1. ágúst
hóf ég einnig að hluta starf sent ráðunautur
hjá Búnaðarsamtökum Vesturlands. Þessi
samtök eru vettvangur búnaðarsamband-
anna þriggja á Vesturlandi fyrirsameiginlega
leiðbeiningaþjónustu. Verkefni mín eru þar á
sömu fagsviðum og ég hef unnið að hér í
Bændahöllinni. I einstaka tilfellum getaskilá
milli stofnana, sem verið er að vinna fyrir
hverju sinni, orðið óljós, þegar unnið er að
skyldunt málum hjá fleiri aðilum. Slíkt tel ég samt litlu varða, því að öll eru
þessi verkefni unnin í þágu íslensks landbúnaðar.
I síðari hluta aprílmánaðar og l'yrri hluta maímánaðar lágu störf mín hjá
félaginu niðri vegna verkfalls F.I.N.
Nautgriparœktin.
Hér á eftir verður vikið að helstu þáttum í starfi rnínu hjá félaginu að
málefnum nautgriparæktarinnar. Eins og áður er meginþungi þeirra verk-
cfna tengdur framkvæmd hins sameiginlega ræktunarstarfs í nautgriparækt-
inni í landinu sent félaginu er samkvæmt búfjárræktarlögum falið að annast.
Skýrsltihaldid. Undirstaða ræktunarstarfsins er skýrsluhald nautgripa-
ræktarfélaganna og úrvinnsla þeirra upplýsinga, sem þar er aflað. Þess
vegna er eðlilegt að vinna að þessu verkefni verði viöamesta einstaka
verkefniö í starfi mínu hjá félaginu. Fyrir árið 1988 voru gerðar upp skýrslur
frá samtals 828 búum yfir samtals 23788 kýr, en reiknaðar árskýr reyndust
vera 18401,9. Breytingar frá undangengnu ári á fjölda kúa voru hverfandi
litlar. Þó að kúm fækki með hverju ári þá er ekki hægt að búa viö söniu
þróun í skýrsluhaldinu. Akaflega brýnt er að auka þar þátttöku umtalsvert.
Afurðir reyndust 3998 kg af mjólk eftir hverja reiknaða árskú nteð 4,06 %
fitu og 3,42 % próteini. Kjarnfóðurnotkun á hverja árskú á búum, sem skrá
þærupplýsingar, var541 kg. Breytingarfráárinu 1987 voru litlará afurðum,
cn þær höfðu þó ögn hækkað og voru því meiri en nokkru sinni áður.
Afurðahæsta bú landsins árið 1988 var hjá Jóni og Sigurbjörgu á Búrfelli í
Miðfiröi með 5940 kg mjólkur til jafnaðar eftir hverja árskú. Af einstökum
kúm mjólkaði mest Laufa 130 á Efra-Ási í Hjaltadal.
41