Búnaðarrit - 01.01.1990, Side 51
voru þessar. Fædd lömb eftir 100 ær voru 173, og 160 lömb komu til nytja.
Reiknuð vanhöld voru því 7,5%. Tvílemban skilaði til jafnaðar 29,2 kg,
einlemba 17,0 kg, ær með lambi 25,5 kg og 23,9 kg fengust eftir vetrarfóðr-
aða á.
Kynbótanefnd sauðfjárrœktar var skipuð söniu mönnum og fékkst við
sömu verkefni og 1988. Nefndin kom tvisvar formlega saman á árinu. Á
fyrri fundinum, 5. júní, voru m.a. til umræðu búfjárræktarlög, sem sam-
þykkt voru á Alþingi 16. maí 1989. Þau lög eru gjörólík hinum eldri,
rammalöggjöf, sem setja þarf reglugerðir við. M.a. gera nýju lögin ráð fyrir
breyttri skipan kynbótanefnda, sem nú nefnast búfjárræktarnefndir.
Reiknað er með að Búnaðarþing 1990 kjósi í nýja nefnd. Síðari fundurinn
var á Hesti 20. september, þar sem aðallega var rætt um hrútakaup og
hrútaskipti sæðingastöðvanna. Sæðingarstöðin á Möðruvöllum var ekki
starfrækt í desember 1989, og munu þær framvegis starfa til skiptis stöðin
þar og í Borgarnesi og eiga hrúta saman.
Fundir og ferðalög. Haustið 1989 var ég 21 dag á ferðalögum vegna
sauðfjársýninga. Fundaferðir voru óvenju fáar. Þann 6. marz sat ég fund á
Húsavík með forsvarsmönnum sláturhúsa á Norð-Austurlandi um hagræð-
ingu við slátrun. Þá flutti ég erindi um kynbætur, kjötrannsóknir og
skýrsluhald á fundi með formönnum fjárræktarfélaga á Suðurlandi 22.
nóvember. Einn dag í maí ferðaðist ég um Suðurland vegna hrútakaupa til
sæðinga.
Utanlandsferðir. Dagana 12.-17. október dvaldist ég í Grænlandi ásamt
Stefáni Sch. Thorsteinssyni og Sigurði Sigurðarsyni dýralækni í boði
grænlensku landsstjórnarinnar. Við Stefán vorum þar við kjötmælingar og
völduin skrokka úr afkvæmarannsóknum til krufninga skv. ósk þarlendra
yfirvalda. Til Bretlands fór ég 28. október og kom heim 4. nóvember. Þar
sótti ég ráðstefnu breska búfjáræktarsambandsins „New Developments in
Sheep Production" í Great Malvern. Kynntar voru ýmsar nýjar niðurstöður
rannsókna, fjallað um framtíð sauðfjárræktar og markaðsmál innan Evr-
ópubandalagsins og mikið rætt um vaxandi kröfur neytenda um ómengaðar
náttúrulegar búvörur. Var fundur þessi að öllu leyti hinn fróðlegasti. Að
ráðstefnunni lokinni dvaldist ég einn dag í Edinborg og fékk þar leiðsögn í
hljóðmyndamælingum (ultrasonic scanning) á fitu- og vöðvaþykkt í lömb-
um. Þar er nú rekið mikið rannsóknaverkefni á þessu sviði, sem felst í að
mæla kynbótaframfarir í Suffolk fé, sem valið er eingöngu eftir hljóðmynd-
um og þunga á fæti. Niðurstöður lil þessa lofa góðu. Dr. Simm í Edinborg-
arskóla stýrir þessu verkefni og leiðbeindi mér á margvíslegan hátt. Lagði
ég drög að kaupum á hljóðmyndatæki ef fé fengist hér heima.
Skrifstofustörf og önnur störf. Samhliða starfi mínu hjá B.í. er ég í 75%
starfi á Rala. Fyrri hluta ársins, að frátöldu 6 vikna verkfalli í apríl og maí,
vann ég langmest við tilraunauppgjör og frágang ritgerða í Minningarrit
49 ■
4