Búnaðarrit - 01.01.1990, Page 64
II. Skýrsla Kristins Hugasonar
Það er með ólíkindum að tímabært skuli að
semja starfsskýrslu fyrir áriö 1989, að árið sé
liðið, en sú er víst raunin.
Þann 1. ágúst síðast liðinn hafði undirritað-
ur starfað í nákvæmlega þrjú ár hjá Búnaðar-
félagi Islands. Sá dagur markaði ákveðin
tímamót í starfinu, en þá hóf ég störf í heilli
stööu hrossaræktarráðunauts hjá félaginu.
Fyrr á árinu höföu viðræður um þessa ráðn-
ingu átt sér stað og lét ég af öðrum störfum
tengdum hrossarækt fyrir 1. ágúst. Frekari
breytingar á högum mínum eru væntanlegar.
Enn um sinn mun égstarfa á Akureyri, en um
mitt þetta ár flyt ég suður til Reykjavíkur og hef þaðan í frá starfsaðstöðu í
Bændahöllinnni.
Starflð á árinu: í fyrstu viku ársins samdi ég erindi fyrir Ráðunautafund,
sjá síðar. Þá tók viö undirbúningur og umsjón með útsendingu dómsskjala
með dómum og kynbótaeinkunnum allra sýndra hrossa á árinu 1988 og
vinna að útgáfu Hrossaræktarinnar. Um miðjan febrúar hvarf ég að öðru
meginstarfi mínu, hrossatamningum, en starfsleyfi átti ég að hafa fram í
miðjan ágúst. Um miðjan febrúar var frágangi Hrossaræktarinnar 1988
hvergi nærri lokið. Því starfi sinnti ég því öllum stundum er gáfust. Einnig
þurfti ég iðulega að bjarga við aðvífandi verkefnum meðfundasetum, vinnu
á skrifstofu eða dómstörfum, svo heldur var starfsleyfið stopult.
Langvarandi verkfall háskólamanna í ríkisþjónustu, þ.m.t. landsráðu-
nauta, varsvo til að kóróna allt saman. Éger í miklum vafa um að eðli starfa
ráðunauta sé slíkt, að fyrir þá sé verkfallsvopnið hið rétta vopn í sókn til
bættra launa. Fari þósvo að ég neyöist að nýju í verkfall mun égekki liggja á
liði mínu við verkfallsvörslu eins og ég geröi nú og ekki orð um það meira.
Á fyrsta dag ágústmánuðar hefur verið minnst hér að ofan, en fyrsta verk
mitt eftir að ég hóf störf „í alvöru" eins og ég segi stundum í gríni, var að
endurskipuleggja innréttingu og fleira á skrifstofu jafnt sem leggja drög að
framtíðarskipulagi starfsins í samráði við samstarfsmenn og yfirboðara.
62