Búnaðarrit - 01.01.1990, Page 70
Dagana 24. til 30. maí ferðaðist ég um með Þorkeli Bjarnasyni og tók út
hross fyrir fjórungsmót austfirskra hestamanna. í þá ferð réðst ég fyrir
tilstilli búnaðarsambandanna á Austurlandi, sem stóðu straum af öllum
kostnaði.
Þann 4. júní var ég formaður dómnefndar á héraðssýningu á Blönduósi
og þann 12. í Suður-Þingeyjarsýslu. Þann 13. júní vann ég að dómstörfum í
Svarfaðardal og 14. til 16. júní á Melgerðismelum og 18. júníleysti ég Þorkel
af hólmi og lýsti dómum á héraðssýningunni á Melgerðismelum.
Dagana 29. júní til 2. júlí var haldið fjórðungsmót hestamanna á
Austurlandi á félagssvæði Freyfaxa á Héraði við Iðavelli. Ég starfaði þar í
dómnefnd kynbótahrossa.
Síðan var ég formaður dómnefnda á síðsumarssýningum á Norðurlandi,
4. ágúst á Vindheimamelum, 11. ágúst á Einarsstöðum, 23. ágúst á Flögu í
A.-Hún. og sama dag á Lækjamóti í V.-Hún.
Önnur störf: Sem fyrr starfaði ég lítillega fyrir Búnaðarsamband Eyja-
fjaröar viðkomandi hrossarækt. Lét ég þar af störfum 31. júlí og hafði áður
hætt öllum þeim félagslegu afskiptum, er skarast gátu við starf hrossarækt-
arráðunauts.
Ég leiðbeindi einum stúdent við Búvísindadeildina á Hvanneyri við
aðalverkefni um kynbætur hrossa og kenndi þar framhaldsvalgrein um það
efni.
Framtíðarsýn: Margt leitar á hugann, sem vinna þarf á þessu enn unga
ári. Úti á vellinum er það undirbúningur og framkvæmd kynbótasýninga á
landsmóti á Vindheimamelum nú í júlí. Inni við skrifborðið er það sú mikla
vinna (sýningarreglur, reglugerð við nýju búfjáræktarlögin og fleira), er
bíður hrossaræktarnefndarinnar sem tekur til starfa á árinu í samræmi við
ný búfjárræktarlög og leysir þá m.a. sýninganefnd og kynbótanefnd Stóð-
hestastöðvarinnnar af hólmi. Einnig hvarflar hugurinn tíðum að útgáfu-
starfinu.
Látum þetta þó nægja því að ærið er skýrslan orðin löng. Vonum það þó
helst og fremst að árið verði notadrjúgt til starfa, þá verður næsta skýrsla
stutt, því ekki þarf að fjölyrða um það þar sem verkin fá að tala.
Ég þakka stjórn Búnaðarfélags íslands, búnaðarmálastjóra, samstarfs-
mönnum og öllum þeim, sem ég hef átt samskipti við á árinu, góða
samvinnu.
Akurcyri 4. janúar 1990,
Kristinn Hugason
68