Búnaðarrit - 01.01.1990, Page 72
Tafla 1. Svínakjötsframleiðsla (lestir) samkvæmt skýrslum siáturleyflshafa
1985-1988.*
Ár. Jan. Fcbr. Mars Apríl Maí Júní Júlí Ágúst Scpt. Okt. Nóv. Dcs.Samtals
1985 123.0 115.1 129.0 125.4 124.1 124.4 140.9 126.9 140.8 165.8 150.5 164.5 1630.1
1986 135.8 125.5 152.5 155.2 145.3 145.3 169.6 142.6 174.9 144.1 171.8 203.9 1866.5
1987 117.6 139.4 167.3 165.6 154.0 173.5 141.7 161.7 173.4 167.7 197.3 247.9 2007.1
1988 117.8 175.5 218.0 157.3 235.1 197.0 201.1 226.1 174.7 206.7 279.6 286.5 2475.4
*,.Svínaslátrun 1988“, tafla 7, hls. 4.
2) Eins og undanfarin ár, eða allt frá árinu 1983, var gerð áætlun eða
eins konar spá um svínakjötsframleiðsluna á komandi ári. Ef sæmilega
nákvæm áætlun um svínakjötsframleiðsluna á komandi ári liggur fyrir um
hver áramót á að vera auðveldara að skipuleggja framleiðsluna. Skýrslur frá
Framleiðsluráði landbúnaðarins, sem byggðar eru á skýrslum sláturleyfis-
hafa, eru mánaðarlega bornar saman við framleiðsluspá, til þess að unnt sé
að gera ráðstafanir tímanlega ef sala á svínakjöti breytist óeðlilega mikið.
Tafla 2. Framleiðslumagn (tonn) samkvæmt framleiðsluspá 1983-89, fram-
leiðslumagn samkvæmt sláturskýrslum og skýrslum fóðurbirgðafélaganna
1983-88 og frávik frá framleiðsluspá 1983-88.*
Framlciðslumagn Framlciðslumagn Mismunur á framlciöslu-
(tonn) samkvæmt (tonn) samkvæmt spá og framlciöslu samkv.
Ár framlciðsluspá skýrslum skýrslum
1983 ................................. 1300.2 1310.2 -10.0 0.8%
1984 ................................. 1484.1 1437.6 +46.5 3.1%
1985 ........................... 1540.1 1641.3 -101.2 6.6%
1986 ................................ 1776.5 1874.4 -97.9 5.5%
1987 ................................ 1984.6 2038.9 -54.3 2.7%
1988 ................................ 2494.6 2481.8 +12.8 0.5%
1989 ................................ 2571.1
'..Niöurstööur framlciösluspár l'vrir áriö 1988 og framlciðsluspá fyrir árið 1989" tafla 4.bls.4.
3) Eins og undanfarin ár var aflað nákvæmra upplýsinga um framleiðslu-
magn, fjölda slátraðra svína, fallþunga og kjötmat hjá hverjum einstökum
svínabónda hjá sláturleyfishöfum. Þessar upplýsingar eru síðan notaðar til
að áætla fjölda nytjagrísa og kjötmagn eftir gyltu hjá hverjum einstökum
svínabónda. Þannigfæst haldgóö mynd af rekstri hverseinstakssvínabúsog
bráðnauðsynlegar upplýsingar fyrir alla leiðbeiningaþjónustu, því að þær sýna
hvaða bændur hafa mesta þörffyrir leiðbeiningar varðandi búreksturinn og
íflestum tilfellum hvar úrbóta er þörf íbúrekstrinurrt. Að sjálfsögðu er farið
með þessar upplýsingar sem trúnaðarmál.
70