Búnaðarrit - 01.01.1990, Page 78
frá norsku afkvæmarannsóknarstöðvunum voru læri og hryggur
39,4% af fallþunga 1981. Með skipulögðum kynbótum er samsvarandi
hundraðshluti orðinn 41,0% 1988. („Fóðurnýting hjá svínum með
hliðsjón af norrænum rannsóknum", tafla 8, bls. 12).
2. Rannsaka flatarmál og stærð hryggvöðvans eða kótilettuvöövans hjá
íslenskum svínum. Fyrirhugað er að nota hljóðbylgjutæki til að mæla
þykkt hryggvöðvans hjá lifandi svínum og gera síðan nákvæmar
mælingar á hryggvöðvanum að lokinni slátrun. Þar sem arfgengi
hryggvöðvans eða kótilettuvöðvans er mjög hátt eða 0,6 á að vera
auðvelt að auka stærð þessa vöðva með ströngu úrvali undaneldisgripa.
Samkvæmt niðurstöðum frá norsku afkvæmárannsóknarstöðvunum
var flatarmál hryggvöðvans eftirfarandi:
1) Árið 1981 33,2 cm2
2) Árið 1988 36,9 cm2
3. Rannsaka galtarbragð, þ.e.a.s. að gera bragðprófanir og mælingar á
magni androsterons í kjöti ógeltra grísa. Ógeltir grísir hafa meiri
vöðvafyllingu og minni fitu en geltir grísir. Auk þess hafa tilraunir sýnt
að ógeltir grísir hafa 6-9% betri fóðurnýtingu og um 7% meiri
vaxtarhraða en gyltugrísir og geldingar. Ef það tækist að auka vaxtar-
hraða íslenskra grísa, þannig að þeir næðu 90 kg þyngd á 5,5-6
mánuðum eins og algengt er í nágrannalöndunum, þá á að vera
tiltölulega auðvelt að útiloka galtarbragð í kjöti með markvissu úrvali
og kynbótum. Arfgengið fyrir galtarbragðið er mjög hátt eða um 0,5.
4. Rannsaka tíðni vatnsvöðva í svínakjöti með skipulögðum sýrustigsmæl-
ingum í sláturhúsum.
Eftirfarandi greinar um svínarækt skrifaði ég á árinu 1989:
1) „Svínaslátrun 1988“ - 28. febrúar 1989.
2) „Niðurstöður framleiðsluspár fyrir árið 1988 og framleiðsluspá fyrir árið
1989“-5. apríl 1989.
3) „Framleiðsla, sala og birgðir af svínakjöti frá 1. janúar til 1. maí 1989“ -
22. maí 1989.
4) „Fjöldi svína og svínabúa 1979-1988“ - 25. maí 1989.
5) „Rannsókn á íslenskum sláturgrísum 1989“-28. sept 1989.
6) „Samanburður á notagildi íslenska svínastofnsins og svínastofna á
Norðurlöndum“ - 28. sept 1989.
7) „Fóðurnýting hjá svínum með hliðsjón af norrænum rannsóknum'* - 28.
sepl 1989.
8) „Framleiðsla, sala og birgðir af svínakjöti frá 1. jan til 1. sept 1989“
Stjórn Búnaðarfélags íslands, búnaðarmálastjóra og öðru starfsfólki
telagsins þakka ég ágæta samvinnu á liðnu ári.
Pétur Sigtryggsson
76