Búnaðarrit - 01.01.1990, Page 81
ég, af Rannsóknaráði ríkisins, verið skipaður í nefnd sem á að vera ráðinu
ráðgjafi í bleikjumálum og stýra ofangreindu verkefni af hálfu ráðsins.
Ég starfaði í hóp á vegum landbúnaðarráðuneytis, sem undirbjó fund um
rannsóknaverkefni í fiskeldi. í framhaldi af því hef ég starfað að undirbún-
ingi kynbótastöðvar í fiskeldi.
Fiskeldishópurinn fór í ferð til Noregs í ágúst . Erindið var að skoða
stærstu fiskeldissýningu í heimi: AQUA NOR. bar vorum við á þremur
fiskeldisráðstefnum. Við heimsóttum nokkrar helstu rannsóknastofnanir í
fiskeldi og skoðuðum nokkrar eldisstöðvar m.a. kynbótastöðina á
Kyrksæteröra og strandeldisstöð við Þrándheimsfjörð. Var okkur allsstaðar
tekið vel og ferðin í alla stað vel heppnuð. Búnaðarfélagið kóstaði þessa
ferð okkar og vil ég þakka stjórn þess og búnaðarmálastjóra sérstaklcga vel
fyrir. Ferðin var liður í endurmenntun fiskeldishópsins og er það mitt álit að
slíkar ferðir séu nauðsynlegar til að halda þjónustu fiskeldishópsins til
bænda sem bestri. Er það trú mín að þessi ferð hafi nýst hópnum vel.
A meðan á sýningunni stóð sat ég fundi, sem einn af fulltrúum íslands í
alþjóðlegunr samtökum laxaframleiðenda. Var það mjög gagnlegur fundur
þar sem skipst var á upplýsingum um framleiðslu og verð auk þess sem
framtíðarhorfur laxeldis voru ræddar.
Eftir sýninguna héit ég til Norður-Noregs og heimsótti bleikjueldis-,
vísinda- og bleikjusölumenn. Var tilgangurinn með þeirri ferð að kynna sér
það helsta sem þessir aðilar hafa verið að gera í bleikjueldismálum og ræða
við þá um hugsanlegt samstarf. Var víða farið og rnargir heimsóttir og tekið
var vel í hugmyndir um samstarf um markaðsmál og rannsóknir.
Fiskeldishópurinn gerði tilögur að verðskrá fyrir þjónustu sína en hún
hefur ekki enn verið endanlega frágengin. Þarf e.t.v. að skoða hvernig hún
er í samanburði við venjur um gjaldtöku fyrir þjónustu félagsins. Nauðsyn-
legt er að þeir er áhuga hafa á fiskeldi sitji við sama borð og aðrir er leita
þjónustu hjá félaginu.
Ég vann einnig að undirbúningi heimsóknar prófessors Harald Skjer-
vold, en hann kom hingað í boði Búnaðarfélagsins, Rannsóknastofnunar
landbúnaðarins og Landssambands fiskeldis- og haflieitarstöðva. Flutti
hann okkur 3 erindi og var sérstaklega athyglivert erindi hans um omega 3
titusýrurnar. Síðan fórum við og skoðuðum nokkrar eldisstöðvar.
Haldið var áfram vinnu að undirbúningi álarannsóknarverkefnis í sam-
vinnu við fulltrúa Veiðimálastofnunar á vestur- og suðurlandi og fleiri aðila.
Gert var ráð fyrir að reyna að byrja þetta verkefni, ef fjármagn fengist,
sumarið 1989, en vegna verkfalls varð ekki af því. Vonir standa til að hægt
verði að hefja verkið á þessu ári.
Reynt var að fá tryggingarfyrirtæki til þess að breyta skilmálum sínum
hvað varðar bleikjueldi, sérstaklega hvað varðar þéttleika. Því miður hefur
þetta ekki tekist ennþá, en áfram verður reynt.
79