Búnaðarrit - 01.01.1990, Síða 98
Á árinu skipulagði Ferðaþjónusta bænda kynningarferð fyrir ferðaþjón-
ustubændur, sem farin var til Wales í mars. í þessa ferð fóru 20 bændur, en
hún var skipulögð í samvinnu við ferðamálaráð í Wales.
Það hefur lengi verið talað um það vandamál, sem felst í því aö bæir í
samtökum Ferðaþjónustu bænda eru mismunandi hvað varðar aðstöðu. I
því sambandi var hafinn undirbúningur að gerð flokkunarkerfis, tillaga að
því gerð fyrir uppbúin rúm og allir bæir, sem bjóða uppbúin rúm í
samtökunum, skoðaðir. í þessum heimsóknum voru nákvæmar upplýsingar
skráðar um hvern bæ. I framhaldi af þeim voru send bréf á bæina og vinna
við skráningu upplýsinga í tölvukerfi hófst. Þess má einnig geta að fulltrúi
frá Ferðaþjónustu bænda fór í námsferð til Wales til þess að kynna sér
flokkun þar, en í Wales hefur flokkun verið lengi í gildi. Fulltrúi frá
Ferðamálaráði þar kom einnig til íslands til ráðlegginga í þessu vandasama
verkefni. Stefnt er að því að flokkunin komist í gagnið sumarið 1990.
Fræðslumál voru einnig í deiglunni á árinu. Það hefur komið í Ijós að hið
hefðbundna námskeiðahald var orðið úrelt. Ekki náðist lengur næg þátt-
taka til þess að grundvöllur væri fyrir því að halda þau. Því var farið að leita
annarra leiða og niðurstaðan var fjarkennsla. Á árinu var unnið að
undirbúningi verkefnisins og vinnslu námsefnis. Fjarkennsluverkefnið er
samvinnuverkefni Ferðaþjónustu bænda, Búnaðarfélags íslands, Iðntækni-
stofnunar íslands, Bréfaskólans og Bændaskólans á Hvanneyri. Stefnt er að
því að hefja kennslu haustið 1990.
Of stuttur nýtingartími er eitt stærsta rekstrarvandamál ferðaþjónustu-
bænda sem og annarra í ferðaþjónustu á íslandi. Skilgreindar voru ýmsar
tillögur til þess aðskapa nýtingu yfir vetrarmánuðina. M.a. var unnið að því
að fá skólahópa frá Bretlandi og fór fulltrúi frá Ferðaþjónustu bænda í
kynningarferð til Kent til að kynna þessa hugmynd. Nokkur árangur hefur
náðst, en mikil vinna er eftir, svo að þessu verkefni verður haldið áfram árið
1990.
Hér hafa verið rakin helstu atriði í starfsemi skrifstofu Ferðaþjónustu
bænda á árinu 1989. Starfsfólk hennar var:
Páll Richardson, framkvæmdarstjóri, Þórdís Eiríksdóttir, gjaldkeri,
Margrét Jóhannsdóttir, ráðunautur B.í, Nanna Briem við sumarafleysingar
og Guðrún Björgvinsdóttir, ritari (eftir 1. október)
Margrét Jóhannsdóttir