Búnaðarrit - 01.01.1990, Page 109
II. Skýrsla Halldórs Arnasonar
Starf mitt á árinu var meö mjög svipuðu sniöi
og verið hefur undanfarin ár. Eins og áöur þá
hafa hafa verkefnin verið af ýmsum toga, en
ég læt nægja að nefna þau helstu.
Bændabókhaldið
Afram var unniö við breytingar og endurbæt-
ur á bændabókhaldinu. Sú vinna og undir-
búningur fór þó fyrir lítið, þar sem ákveðið
var mjög snögglega aö hætta við notkun á því
kerfi, sem í notkun hefur verið, og fá utanað-
komandi aðila til að skrifa nýtt kerfi, sem
taka á í notkun strax á árinu 1990. Samtímis
því að ákveðiö var að taka up nýtt kerfi í bændabókhaldinu, þá var farið út í
kaup á módemum og samskiptaforritum til þess að geta haft samband við og
milli búnaðarsambandagegnum símakerfið, bæði til aðstoðarogflutninga á
gögnum. Vann ég að þessum hlutum ásamt Katli A. Hannessyni og var
þessi búnaður keyptur hjá tölvufyrirtækinu Tæknivali rétt fyrir áramótin.
Loðdýraræktarskýrsluhald
Þótt ekki hafi blásið byrlega fyrir loðdýraræktinni á árinu, þá var áfram
haldið uppbyggingu skýrsluhalds í greininni. Haldið var áfram með þróun
forrita til notkunar hjá bændunum sjálfum og gögnin flutt í tölvu Búnaðar-
félagsins til uppgjörs. Þátttaka jókst frá árinu 1988 í minknum, skýrslufærð-
ar læður urðu rúmlega 65.500, en stærsta búið hætti rekstri á árinu svo að
veruleg afföll urðu, en þó komu nærri 51.000 læður til uppgjörs á móti
rúmlega 43.000 árið 1988. Refalæðum sem komu til uppgjörs fækkaöi aftur
á móti verulega og komu aðeins 1890 til uppgjörs á móti 4757 á árinu 1988.
Svínarækt
A árinu vann ég að einföldu forriti til notkunar meðal bænda ísvínarækt. Er
þar um að ræða skráningu upplýsinga og útreikninga á helstu niðurstöðum í
samræmi við það sem Búnaðarfélagið hefur boðið uppá. Er þetta nú í
prófun og von til aö það auðveldi þcim svínabændum, sem hafa yfir
tölvubúnaði að ráða, að fylgjast með og velja einstaklinga í ræktuninni.
107
Halldór Árnason
L