Búnaðarrit - 01.01.1990, Page 113
II. Skýrsla Porvaldar Björnssonar
Verkefni mín á árinu voru mikið þau sömu og
undanfarin ár.
Frá skrifstofunni eru gefnar margvíslegar
upplýsingar varðandi vinnslu refa, minka og
vargfugla. Mikið er um að kvartað sé undan
ágangi þessara dýra og margþættu tjóni af
þeirra völdum. Þá er leitað eftir aðstoð við að
fækka þeim og er jafnan reynt að verða við
þeim óskum eftir því sem hægt er hverju
sinni.
Unnið var að því að innkalla veiðiskýrslur
,, ,, fyrir árið 1988. Yfirfarnir voru reikningar og
Porvaldur Biörnsson . . ... . ? „
umsagmr veittar um endurgreiðslur. Aðstoð-
að var við val á skotvopnum og skotfærum, sjónaukar stilltir á rifflum og
byssur færðar til viðgerðar. Minkaveiðimönnum voru útvegaðar gildrur og
leiðbeint um notkun þeirra.
Skipulagðar voru fækkunaraðgerðir í samráði við oddvita og sveitar-
stjórnir víða um land. Sat nokkra fundi og hélt námskeið um fækkun
svartbaks og sílamáfa á Keflavíkurflugvelli.
Fastur liður í starfi mínu eru veiðiferðir vítt og breitt um landið, sem eru
farnar til að vera í tengslum við raunveruleikann. Ferðirnar eru einnig
farnar til að leiðbeina verðandi veiðimönnum og koma á framfæri aðferð-
Ufn, sem reynst hafa vel og eru ekki öllum kunnar. Hagsmunaaðilum, sem
°rðið hafa fyrir ágengni vargs, er einnig veitt aðstoð og leiðbeint til að reyna
að koma í veg fyrir frekara tjón.
1 þessum ferðum mínum náði ég 28 refum og 198 minkum. Með aðstoð
trúnaðarmanna og ööruni fækkunaraðilum náðust 1815 hrafnar og 45.469
máfar, en það var fyrir mestu að víða tókst að uppræta varga, sem búnir
voru að valda töluverðum usla.
Eins og áður annast Hreinn Ólafsson hundabúið að Helgadal í Mosfells-
bæ, en þar var ráðist í það að byggja yfir hundana og stórbæta aðstöðuna.
Frá búinu voru lánaðir og leigðir nokkrir hundar og einnig var hvolpum
r;íðstafað til veiðimanna. Með aðstoö veiðihunda frá búinu náðust um 900
minkar á árinu.
Lauslegar athuganir voru gerðar á fæðuvali svartbaks og sílamáfs við
oorðanverðan Breiðafjörð 26. júní - 3. júlí.
111