Búnaðarrit - 01.01.1990, Page 116
Forfallaþjónusta 1989
Forfallaþjónustu í sveitum var komið á með
lögum nr. 31/1979 og tók til starfa um mitt ár
1980. Búnaðarfélag íslands fer með yfirstjórn
hennar í umboði landbúnaðarráðuneytis, en
búnaðarsamböndin ráða starfsfólk, livert á
sínu svæði. Lögin kveða á um að ráða megi
allt að 60 menn til afleysingastarfa á ári.
Starfsemi forfallaþjónustunnar var með
svipuðum hætti og undanfarandi ár. Mjög fá
álitamál komu til úrskurðarhjástjórn Búnað-
arfélags íslands.
Mikil eftirspurn var eftir að fá greidd laun
afleysingafólks á árinu. Leit á tímabili út fyrir
að tamarka þyrfti afgreiðslu vegna fjárskorts. Úr því rættist þó með því að
Stofnlánadeild lagði fram aukið fé. Arsstörf urðu á árinu 72,18 og eru það
um 10 ársverkum fleiri en liafa nokkurn tíma áður orðið. Halli er enn
ójafnaður á starfseminni um 1 milljón króna frá árinu 1987.
í lögum um forfallaþjónustu í sveitum var gert ráð fyrir að búnaðarsam-
böndin hefðu fastráðið fólk í afleysingastörfum. Það hefur ekki gengiö og
fremur illa hefur gengið að halda í lausráðiö fólk. Það hefur því í ríkum mæli
orðið að samþykkja fólk, sem heimilin útveguðu sjálf.
Til forfallaþjónustunnar var áætlað á fjárlögum áranna 1980-1985 einsog
að neðan greinir. Á árunum 1986- 1989 varlagt fé til forfallaþjónustunnar
frá Stofnlánadeild landbúnaðarins, með ákvæði í lánsfjárlögum en með
tilvísun til laga nr. 31/1979.
Áætluð Nýtt
ársverk ársverk
mOí'/iár........................................... 20 18
1981 ............................................. 25 26
1982 ............................................. 33 33
1983 ............................................. 38 51.5
1984 ............................................. 50 60,6
1985 ............................................. 60,0 61,5
1986 ............................................. 60,0 65,9
1987 ............................................. 60,0 66,1
1988 ............................................. 60,0 62.7
1989 ............................................. 60,0 72.2
114