Búnaðarrit - 01.01.1990, Page 122
Landgræðsla ríkisins
/. Starfsskýrsla landgrœðslustjóra 1989
Vorkuldarnir og stutt og kalt sumar koma
fyrst upp í hugann, þegar litið er yfir farinn
veg landgræðslu og gróðurverndar á árinu
1989. Það voraði seint og mikill snjór var á
afréttum langt fram á sumar. Hann hlífði þó
gróðri, sem kom sér vel í þurrum og köldum
maí. Gróður á afréttum var mjög seinn til, en
víðast var upprekstri seinkað verulega af
þessum sökum. A hinn bóginn stóð gróður
langt fram á haust og var afréttargróður því
þokkalega vel undirbúinn undir veturinn.
M jög lítill snjór er kominn á hálendi landsins
þegar þetta er ritað og því hætt við að mikið
frost sé komið þar í jörðu. Nokkrir hvassviðrisdagar komu í sumar með
tilheyrandi moldroki, okkurog forráðamönnum þjóðarinnar til áminningar
um stærri skref í uppgræðslu og gróðurverndaraðgerðum.
Landgræðslumál voru mikið í brennidepli í fjölmiðlum ekki síst vegna
atbeina Ataks í landgræðslu. Umfjöllun fjölmiðla var þó jákvæðari en oft
áður. Forráðamenn þjóðarinnar vitnuðu óspart til gróðurverndarhugsjóna,
en ekki hefur það skilað ncinum hækkunum á fjárframlögum af hálfu hins
opinbera til þessa málaflokks.
Á árinu gaf Landgræðslan út ársrit, Græðum ísland 1988, með svipuöu
sniði eins og afmælisritið, Græðum ísland, Landgræðslan 80 ára. í ársritinu
er fjöldi greina um landgræðslu og gróöurvernd og hefur þessum bókum
verið vel tekið. Ennfremur var lokið við gerð kvikmyndar um landgræðslu,
Græðum Island, sem unnin var af Myndbæ h/f. Myndin var sýnd tvívegis í
Ríkissjónvarpinu.
Landbúnaðarráðuneytið, Landgræðslan og Skógræktin gáfu út á árinu
bækling, sem nefnist „ Gróðurvernd - Markmið og leiðir". Þar er mörkuð
stefna þessara aðila í gróðurverndarmálum á næstu árum, markmið eru sett
og greint er frá helstu verkefnum, sem þarf að vinna að á næstu árum.
Landgræðslustarfsemin fór fram með svipuöu sniði og verið hefur á
síðustu árum. Það sem efst var á baugi yfir vetrarmánuðina var rekstur
fræverkunarstöðvarinnar í húsakynnum Fóður- og fræframleiðslunnar í
Gunnarsholti. í þessari stöð er húöað allt það grasfræ, sem Landgræðslan
120