Búnaðarrit - 01.01.1990, Blaðsíða 166
Mál nr. 7
Tillaga til þingsályktunar um landgrœðslu - 43. mál 112. löggjafarþings.
Afgreitt með máli nr. 15.
Mál nr. 8
Tillaga til þingsályktunar um kynbótastöð fyrir laxfiska - 50. mál 112.
löggjafarþings.
Málið afgreitt með eftirfarandi ályktun, sem samþykkt var með 20 sam-
hljóða atkvæðum:
Búnaðarþing ítrekar fyrri afgreiðslu sína og mælir eindregið með sam-
þykkt þingsályktunar Alþingis um kynbótastöð fyrir laxfiska með þeirri
breytingu, að orðinu laxfiska verði breytt í eldisfiska.
GREINARGERÐ:
Á Búnaðarþingi 1989 var lögð fram til umfjöllunar þingsályktunartillaga
um kynbótastöð fyrir cldislax, 36. mál 111. löggjafarþings.
Búnaðarþing samþykkti þingsályktunartillöguna með einni breytingu:
Orðinu eldislax var breytt í orðið eldisfisk.
Mál nr. 9
Frumvarp til laga um Ábyrgðadeild fiskeldislána - (Lagtfyrir Alþingi á 112.
löggjafarþingi 1989).
Málið afgreitt með eftirfarandi ályktun, sem samþykkt var með 17 sam-
hljóða atkvæðum:
Búnaðarþing mælir með lögfestingu Frumvarps til laga um Ábyrgðadeild
fiskeldislána, 256. máls 112. löggjafarþings.
Við lögfestingu á frumvarpinu verði sérstaklega athugað, hvort ekki sé
nauðsyn að hækka heimild um ríkisábyrgö úr 37,5%, þar sem ætla má, að
slík rýmkun á heimildinni gæti leyst vanda fleiri fiskeldisfyrirtækja á
raunhæfan hátt.
Þá leggur þingið til, að ábyrgðin gildi í 8 ár í stað 6, í því formi, sem
frumvarpið gerir ráð fyrir.
Búnaðarþing bendir á 5. gr. frumvarpsins, sem kveður á um stjórn
Ábyrgðadeildarinnar. Þar kemur meðal annars fram, að stjórn deildarinnar
beri að framkvæma ýtarlegt mat á stöðu og rekstraröryggi viðkomandi
fyrirtækja, og fyrirtæki komi því aðeins til álita við veitingu sjálfskuldaá-
byrgða, að grundvöllur teljist vera fyrir rekstri þeirra til lengri tíma litið.
Þingið telur, að þessi ákvæði 5. gr. geti veitt tryggingu fyrir því aðhaldi,
sem þörf er á, um veitingu ríkisábyrgða í þessu efni.
164