Búnaðarrit - 01.01.1990, Page 176
IV.
Tilgangur samtakanna.
Tilgangur hreppabúnaðarfélaga, búnaðarsambanda og Búnaðarfélags
íslands er sá sami. Þessi samtök mynda eina heild sem vinnur aö því „að efla
hvers konar framfarir í landbúnaði og með því að bæta landbúnaðarfram-
leiðsluna og auka hagsæld þeirra, sem landbúnað stunda". (Úr samþykkt
Bsb. Suðurlands).
Það einkennir leiðbeiningaþjónustu í landbúnaði og skyld störf búnaðarfé-
lagsskaparins að þau leiða yfirleitt til framfara hjá greininni í heild.
Fjármunum búnaðarsamtaka er aldrei varið til beinna styrkja til einstak-
linga, eða beint til einstakra félagsmanna. (Framlög til einstaklinga vegna
jarðabóta sem greidd eru úr ríkissjóði samkvæmt ákvæðum jarðræktarlaga
eru hér fyrir utan. Framlög samkvæmt búfjárræktarlögum ganga öll til að
styrkja félagslega starfssemi að búfjárkynbótum.).
Með því kerfi sem viðhaft er við verðlagningu búvara á Islandi leiða
framfarir í landbúnaði til lækkaðs vöruverðs til neytenda, eins og auðvelt er
að sýna fram á að gerst hafi. Því má færa rök að því að allir fjármunir, sem
búnaðarfélög, búnaðarsambönd og B.í. kunna að afla með starfsemi eða
öðrum hætti renni til almenningsþarfa (sjá reglugerð nr. 245/1963, 1. og 2.
lið 6. gr.)
V.
Starfscmi búnaðarfélagsskaparins.
1. Búnaðarfélag íslands. (sem er undanþegið tekju- og eignaskatti samkv.
lögum) stundar margháttaða leiðbeiningastarfsemi (auk umboðsstarfa
fyrir ríkið að framkvæmd sérlaga eins og búfjárræktarlaga, jarðræktar-
laga ofl.) Þar undir fellur fjölbreytt útgáfa ársrita, tímarita og einstakra
fræðslurita. (Rit þessí eru seld að undanteknu Búnaðarritinu sem er
ársskýrsla félagsins). Það rekur Nautastöð á Hvanneyri og nautauppeld-
isstöð í Laugardælum í samræmi við ákvæði búfjárræktarlaga og selur
sæði til búnaðarsambandanna á kostnaðarverði.
Af annarri þjónustustarfsemi má nefna rekstur tölvudeildar, sem annast
uppgjör og talnavinnslu fyrir aðrar deildir félagins, og nokkra þjónustu
við utanaðkomandi.
2. Búnaðarsamböndin hafa leiðbeiningaþjónustu við bændur að aðalverk-
efni en henni tengd eru margháttuð umboðs- og trúnaðarstörf fyrir ríkið
(sbr. framkvæmd jarðræktarlaga ofl.) eða hálfopinbera aðila (fram-
kvæmd búvörulaga ofl.) Kynbótastarfsemi (nautgriparækt, sauðfjár-
rækt og hrossarækt) samkvæmt ákvæðum búfjárræktarlaga hvílir mjög á
búnaðarsamböndunum en þar samtvinnast leiöbeiningar og störf að
framkvæmd laga. Þáttur í kynbótastarfseminni er svo sæðingarstarfsemi
(nautgripir og sauðfé), en sæðingar eru greiddar af viðkomandi bænd-
um.
174