Búnaðarrit - 01.01.1990, Page 200
Ýmislegt fleira mætti hér til nefna, en vísum þá í meðfylgjandi athuga-
semdir, auk þess sem nefndarmenn eru alltaf reiðubúnir til þess að gefa
frekari upplýsingar, ef eftir því verður leitað.
Reykjavík, 22. marz 1989
Páll Guðbrandsson Örn Bergsson
(sign.) (sign.)
Ólafur G. Vagnsson
(sign.)
Mál nr. 36
Erindi Púls Olafssonar og Önnubellu Harðardóttur: Tillaga að ályktun um
uppbyggingu og þróun aðferða til að framleiða rotmassa til svepparœktar.
Málið afgreitt með eftirfarandi ályktun, sem samþykkt var með 14 sani-
hljóða atkvæðum:
Búnaðarþing skorar á Iandbúnaðarráðherra að hlutast til um, að fram-
leiðendur ætisveppa taki höndum saman um að framleiða rotmassa til
svepparæktar úr innlendum hráefnum. Markmiðið sé, að unnt verði að
fullnægja innanlands eftirspurn eftir ætisveppum af fullnægjandi gæðum og
á frambærilegu verði.
GREINARGERÐ:
Á síðari árum hefur neyzla ferskra ætisveppa aukizt allmikið hér á landi,
og jafnhliða hefur innlend framleiðsla vaxið. Framleiðsla ætisveppa skiptist
í tvö aðgreind ferli. Annars vegar er framleiðsla á vaxtarbeði, rotmassa, þar
sem aðalhráefni er kornhálmur. Hins vegar er ræktun sveppanna. Hvort
ferlið um sig er flókið og vandasamt og krefst mikillar kunnáttu, ef
viðunandi árangur á að nást.
Mál nr. 37
Erindi jarðrœktarnefndar um beitarþolsrannsóknir.
Málið afgreitt með eftirfarandi ályktun, sem samþykkt var með 24 sam-
hljóða atkvæðum:
Búnaðarþing ítrekar álit sitt frá 1989 um mat á beitarþoli lands, mál nr. 29
og 31.
Þingiö vill því enn beina því til stjórnenda og sérfræðinga Búnaðarfélags
Islands, Rannsóknastofnunar landbúnaðarins og Landgræðslu ríkisins að
taka höndum saman urn að endurmeta aðferðir við mat á raunverulegu
beitarþoli landsins.
198