Búnaðarrit - 01.01.1990, Page 202
Það sem síðan hefurgerst veldur vonbrigðum. Vangreiddframlögfyrri ára
hafa ekki verið greidd eins og samkomulag var um. Fjárveitingar til
framkvæmda skv. lögunum eru á engan háttí samræmi við heimildir þeirra.
Sú spurning erþvíæði áleitin, til hvers var barist eða hvaða gagn er íað gera
samkomulag.
Þess eru ekki dæmi, að Búnaðarþing komi málum sínum á framfæri með
þeim hætti, sem hér er gert. Þar ræður traust Búnaðarþings á landbúnaðar-
nefndum Alþingis sem byggist m.a. á þeim lyktum, er urðu á afgreiðslu
nefndra laga á síðasta vetri.
Það er einlœg von Búnaðarþings að landbúnaðarnefndir Alþingis kryfji
málið til mergjar og hafi síðan forystu um að færa það til þess horfs, sem
samkomulag var um þegar lögin voru sett 1989.
Virðingarfyllst,
Hjörtur E. Þórarinsson (sign.)
Forseti Búnaðarþings
Samhljóða bréf var sent:
Landbúnaðarnefnd neöri deildar Alþingis
Hr. Alexander Stefánsson form.
Alþingi
150 Reykjavík
Mál nr. 39
Erindi fjárhagsnefndar um sameiningu Búnaðarfélags Islands og Fram-
leiðsluráðs landbúnaðarins.
Fjárhagsnefnd lagði fyrir þingið svo hljóðandi ályktun á þingskjali nr. 93:
Búnaðarþing 1990 samþykkir að óska eftir viö stjórnir Búnaðarfélags
íslands og Framleiðsluráðs landbúnaðarins, að fram fari viðræður milli
þessara stofnana um möguleika á sameiningu þeirra eða náinni samvinnu.
Þingskjal nr. 94:
Við síðari umræðu í máli nr. 39 bar Egill Jónsson fram eftirfarandi
dagskrártillögu, þingskjal nr. 94, sem samþykkt var með 11 atkvæðum gegn
10, og málið þar með ekki rætt frekar, en vísað til starfandi nefndar:
Þar sem Búnaöarþing hefur á þessu þingi samþykkt, að stðrfum nefndar,
sem fjallar um félagskerfi landbúnaðarins, verði lokið fyrir næsta Búnaðar-
200