Búnaðarrit - 01.01.1990, Page 224
Berklaveiki í hundum og köttum.
Hér á landi hefur ekki fundist berklaveiki í hundum eða köttum enda ekki
verið sérstaklega eftir því leitað. Hundar geta sýkst bæði af mannaberklum
og nautaberklum og sumstaðar erlendis er berklaveiki í hundum ekki
óalgeng. Kettir sýkjast oftast af nautaberklum en sjaldan ber það við að þeir
sýkist af mannaberklum. Allmörg dæmi eru um það erlendis að hundar hafi
sýkt börn af berklum. Væri ástæða til þess að gefa máli þessu meiri gaum,
ekki síst ef kjölturökkum fjölgar hér á landi.
Berklaveiki í fuglum.
Berklar í fuglum voru fyrst staðfestir hér á landi í hænu frá Hafnarfirði árið
1933. Voru ræktaöir berklasýklar úr hænu þessari á Rannsóknastofu
Háskólans. Síðan hafa berklar fundist í hænsnum einkum frá sveitabæjum
víða um land. Svo virðist sem fuglaberklar hafi alls ekki verið fátíðir hér á
Iandi meðan sá vani var almennur að láta hænsni í sveitum og þorpum vera
frjáls ferða sinna og farga hænum fyrst þegar þær voru orðnar rnjög gamlar
og endurnýjastofninn með þvíað Iáta hænur liggja á eggjum ogunga út öðru
hverju.
Hænsnarækt víða um land hélst í þessari mynd að mestu allt fram yfir
miðja þessaöld, þáfyrst voru tök á þvíað kaupa kjúklinga úrhænsnaræktar-
búum til að endurnýja stofninn. Jafnframt varð mönnum Ijóst að endurnýja
þurfti varphænustofninn annað hvert ár ef varpið átti að vera viðunandi.
Þessar breytingar í hænsnarækt hafa haft í för með sér að berklaveiki í
hænsnum frá sveitabæjum finnst nú mun sjaldnar en áður var. Berklaveiki í
hænsnum er fyrst og fremst bundin við meltingarveginn. í görnum finnast
djúp sár, full af draflakenndum greftri. sem er morandi af berklasýklum.
Saur úr berklaveikum hænum er því að jafnaði mjög mengaöur berklasýkl-
um.
Við líffæraskoðun á berklaveikum fuglum ber mest á áöurnefndum
sárum í meltingarvegum sem líta út eins og smá æxli eða hnútar utan á
görnum. Oft er einnig miklar berklaskemmdir að finna í milti og lifur.
Berklaveiki dregur að sjálfsögðu mjög úr þrifum fuglanna og varpi, en
sjaldan kemur það fyrir að berklasýklar finnist í eggjum. Oft ganga fuglar
lengi með bcrklaveiki áður cn yfir lýkur. Þar sem berklaveiki kemur upp í
hænsnabúi, hefur reynst vænlegast til árangurs, að fella stofninn, hreinsa
rækilega vistarverur hænsnanna og kaupa síðan heilbrigð hænsni. Það hefur
yfirleitt ekki gefið góða raun að aðgreina heilbrigða og sjúka fugla með
berklaprófi, og leitast þannig við að uppræta sjúkdóminn.
Hér á landi hafa fuglaberklar fundist bæði í kúm, hrossum, svínum og
sauðfé, eins og drepiö er á hér að framan.
Venjulega hafa þcssar smitanir ekki ieitt til þess að dýrin yröu sjúk af
berklum eða smitberar. Allt bendir til þess að auk hænsna séu villtir fuglar
222