Búnaðarrit - 01.01.1990, Síða 235
sem kunnugt er til norðurs innan sanda á um 5,3 km svæði og sameinast
Jökulsá á Brú með rennsli til sjávar. Með því að veita fljótinu beint í austur í
Héraðsflóa myndi afrennslisaðstaða fljótsins stóraukast og uppganga lax-
fiska á vatnasvæðið að öllum líkum auðveldast. Hins vegar er ekki öruggt
um, að afrennslið haldist ávallt opið, því að mikið getur brimað þarna á
ströndinni, sem er fyrir opnu hafi.
Þá voru mældar til kortagerðar jarðirnar Krumshólar og Ölvaldsstaðir I,
II, III og IV í Borgarhreppi vegna fyrirhugaðra landsskipta.
Haustið 1946 var einsýnt um, að Pálmi Einarsson léti af starfi hjá
Búnaðarfélagi Islands og tæki við starfi landnámsstjóra sem framkvæmda-
stjóri Nýbýlastjórnar. Húsrými var mjög takmarkað í gamla Búnaðarfélags-
húsinu við Lækjargötu, og unnum við Pálmi saman í herbergi.
Pálmi hóf störf sín sem jarðræktarráðunautur Búnaðarfélags íslands árið
1925. Hann var annálaður og skjótráða orkumaður til liugar og handa, sem
lét enga erfiðleika hindra sig í starfi. Erfiðleikana leit hann á sem hvert
annað verkefni, sem vinna þurfti bug á og leysa á réttan veg.
Pálmi skýrði fyrir mér öll lög og reglugerðir, sem Búnaðarfélaginu bæri
að starfa eftir á sviði jarðræktar, einnig hvernig haga bæri afgreiðslu mála,
sem ýmist var til stjórnar Búnaðarfélags Islands, félaga, einstaklinga eða
fyrirtæja, allt eftir eðli málanna. Á þessum tímum var ný alda ræktunar-
framfara að ganga í garð hérlendis. Lög um Ræktunar- og húsagerðarsam-
þykktir í sveitum, sem staðfest voru 12. janúar 1945, stuðluðu að stofnun
jarðræktarsambanda og félaga víðs vegar um landið til sameiginlegra
úrlausna á verkefni því, er lögin heimiluðu.
Vélasjóður var í örum vexti og starfrækti á árinu 1946 fjórtán dragskóflu
skurðgröfur og á árinu 1947 tuttugu og fimm. Ræktunarsambönd og félög
lögöu í upphafi megináherzlu á að eignast dieselknúðar dráttarvélar (ýtur) á
skriðbeltum með jarðýtu. Undantekning var þó á þessu, því að framræslu-
og áveitufélag Staðarbyggðar (Öngulsstaðahreppur) keypti árið 1945 drag-
skóflugröfuna V-2 af Vélasjóði og seldi honum hana aftur árið 1950. Vél
þessi var enn í nokkrum rekstri árið 1959, en þá var hún yfirfarin og afhent
væntanlegu minjasafni á Hvanneyri til varðveizlu.
Áriö 1947 kaupir Landnám ríkisins Koehring gröfu af Vélasjóði, og
ræktunarsamböndin flytja inn þrjár gröfur. Pað voru því 29 gröfur, sem
störfuðu fyrir bændur árið 1947.
I ársbyrjun 1947 ræddum viö Ásgeir L. Jónsson um skipulagningu
mælinga verkefna á komandi árum. Augljóst var, að Búnaðarfélag Islands
gat ekki, svo fáliðað, sem það var, annast allar þær mælingar fyrir þurrkun
lands, sem gröfureksturinn þurfti. Landinu skiptum við í tvö svæði í grófum
dráttum, og annaðist Ásgeir Austurland og Suðurland í vestur að Ölfusá, en
ég hinn hluta landsins. Skipting þessi hélzt með ágætri samvinnu, þar til
Ásgeir skipti að meginefni um starfssvið árið 1965 með því að annast
233