Morgunn - 01.06.1925, Blaðsíða 25
MORGUNN
19
fyrir fótum engilsins, grét og mælti: „Ef eg væri maklegur
slíkrar þjónustu, herra. En því er miður, aS eg er ekki mak-
legur hennar. Eg þekki heldur ekki þessa liðsveit, og veit
ekki, hvort þeir mundu fást til að fylgja mér.“
Og engillinn svaraði: „Skilaboðin lcoma frá Honum, sem
getur cigi vilst í vali sínu á mönnum. Kom þú, þú munt eigi
hitta þar fyrir neinn flokk ókunnugra manna. Því að oft
liefir það komið fyrir, meðan þreyttur líkami þinn svaf, að
farið hefir verið með þig inn á þetta sama svið, já, það var
jafnvel gert meðan þú lifðir á jörðinni. Þar hefir þxi lika
sjálfur verið æfður, og þar lærðir þú fyrst að hlýða og síðan
að skipa fyrir. Þú munt kannast vel við þá, er þú sér þá,
og þeir munu kannast vel við þig. Hann mun verða styrkur
þinn, og þú munt duga vel.“
Því næst leiddi engillinn hann út úr húsinu og ofan eftir
strætinu og upp fjallskarðið þar fyrir liandan. Og er þeir
héldu áfram, varð búningur skósmiðsins bjartari og úr létt-
ara efni, og líkami hans varð þreklegri og iniklu meira ljóm-
andi, og því hærra sem þeir komust upp, því meira hvarf
smátt og smátt skósmiðurinn, en liöfðinginn og leiðtoginn
kom í ljós.
Eftir langa ferð og skemtilega — því að henni hafði
af ásettu ráði verið seinkað, til þess að breytingin gerðist ekki
of skyndilega — komu þeir til liðsveitarinnar. Iíann kann-
aðist við þá, einn og sérhverri þeirra, og þeir komu og gengu
fram fyrir liann, og hann fann, að hann gæti vel verið leið-
togi þeirra, af ástúðarljómanum, sem liann sá í augum þeirra.“
Háttvirtu tilheyrendur! Nú spyr eg yður að lokum í
einlægni: Eru slíkar hugmyndir og þetta líklegar til þess að
spilla trú vorri, líklegar til þess að gera liana auvirðilegri
eða fátæklegri?
Eg hygg það sé öðru nær.
Fáum vér ekki í annarri eins fræðslu staðfesting á fyrir-
heitum Krists ? Það má vel vera, að slíkar frásögur komi
eldd að öllu leyti heim við sumar kirkjukenningarnar, sem