Morgunn - 01.12.1953, Page 11
MORGUNN
89
Páll postuli
ekki sammála
guðfræðingnum.
í guðfræði. Hann veit, að vottarnir í
frumkristninni voru sannfærðir um, að
þeir hefðu séð Krist upprisinn og að
englar hefðu vitrazt þeim, en hann
gefur nútímamanninum þá ráðleggingu, að fari hann að
sjá slíkar sýnir, eigi hann óðara að leita til taugalæknis.
Hvað hefði Páll postuli gert? Mundi hann ekki hafa svar-
að hinum lærða guðfræðingi: Ég hef séð Krist. Englar
hafa vitrazt mér, veitt mér dásamlega handleiðslu. Geymdu
ráðleggingar þínar, unz þú hefur fengið reynslu mína. Og
öll frumkristnin mundi hafa svarað á sama veg. Svo langt
geta menn villzt frá uppsprettum þess, sem þeir þykjast
vera að boða. Þá á frjálslyndi guðfræðingurinn próf. Mos-
bech, sem lýlega er látinn og mörgum íslendingum er að
góðu kunnur, ritgerð í safni þessu. Mál hans er að venju
ljóst og skýrt. Hann andmælir trúnni á upprisu holdsins,
og talar af skilningi um trú margra mót-
mælenda á þróun eftir dauðann, og sýnir
fram á, hve mörg ummæli Nýja testamentis-
ins geri að staðleysu kenninguna um grafarsvefninn, og
hann telur skynsamlegt að hugsa sér lífið eftir dauðann
sem einhvers konar framhald jarðlífsins.
Þessara dönsku umræðna og þessarar bókar getur
MORGUNN ekki vegna þess, að hér sé sérlega merkilegt
mál á ferðinni, en gerir hins vegar ráð fyrir að lesendum
þyki fróðlegt að vita, hvernig er um þessi mál verið að
ræða hjá frændþjóðinni við Eyrarsund.
Þróun eftir
dauðann.