Morgunn


Morgunn - 01.12.1953, Side 21

Morgunn - 01.12.1953, Side 21
MORGUNN 99 „Þín náðin, Drottinn, nóg mér er, því nýja veröld gafstu mér.“ 1 þeirri raun varð séra Kristinn enn sakir sálar- göfgi sinnar og karimennsku undrunarefni öllum þeim, sem sáu hann. Og með þessari skíru sálarsjón, borinn uppi af hinni björtu spíritistísku sannfœringu og kristilegu trú, bar hann síðustu mánuðina miklar og erfiðar þrautir, unz yfir lauk. I heimilislífinu var hann gæfumaður. Skömmu eftir að hann var orðinn prestur á Söndum gekk hann að eiga ástmey sína, Idu Halldórsdóttur, yfirkennara Friðriksson- ar, eina friðustu og bezt menntuðu stúlku Reykjavíkur á þeirri tíð. Frú Ida var göfug kona og hjónabandið af- burða farsælt. Hún andaðist árið 1909 og sem ekkjumaður beið elskhugi hennar endurfundanna í 44 ár. Þau eign- uðust 6 böm. Dóttur misstu þau unga, Sigríði. Magnús missti hann, nýorðinn stúdent, og Daníel bókhaldara missti hann fyrir 3 árum. Á lífi hér í heimi eru synir tveir, þeir iæknarnir Halldór og Knútur, en Sigríður dóttir hans er gift kona og búsett í Kaupmannahöfn. Hvað eftir annað hefur hún komið hingað heim til að gleðja föður sinn, og er nú komin enn til að fylgja líki hans til grafar. 1 stað einkadótturinnar, sem örlögin báru til annars lands, eignaðist hann aðra dóttur, tengdadótturina, sem hann hefur lengst verið samvistum við, frú Áslaugu Guðmunds- dóttur Böðvarssonar, sem hefur reynzt séra Kristni þannig, að allir kunnugir hljóta að elska og virða þá konu. Ég sat við andlátsbeð hans, meðan hann hafði enn rænu og var að neyta síðustu kraftanna til að tala og kveðja, og kveðjuorð hans til tengdadótturinnar myndum vér öll kjósa oss að eiga af vörum deyjandi ástvinar. Hann talaði um heimkomuna, um fögnuðinn yfir umskiptunum, og það var síðast eins og allt jarðneskt væri horfið honum annað en þessi kona, sem dæmafáan kærleik hafði gefið honum. Og þegar ég heyrði þessi kveðjuoi'ð deyja út á vörum hans, komu mér orð postulans í hug: „Þótt ég talaði tungum manna og engla, en hefði ekki kærleika, yrði ég L

x

Morgunn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.