Morgunn


Morgunn - 01.12.1953, Page 28

Morgunn - 01.12.1953, Page 28
106 MORGUNN miðillinn sig og hóstaði alveg með sama hætti og E. H. Kv. var vanur að gera. Svo hélt hann máli sínu áfram: „Mér þótti vænt um, þegar þú fluttist niður í gamla svefnherbergið okkar, og seinast varstu í herberginu mínu.“ Það er rétt, að œðilöngu eftir lát Einars Kvarans flutti ég úr herbergjum mínum upjn og í herbergi það, sem Kvarans-hjónin notuðu sem svefnherbergi, en síðustu mánuðina, sem ég bjó á Sólvallagötu 3, var ég í einkaherbergi Kvarans, skrifstofu hans. „Oft horfðir þú á myndirnar af okkur og stundum greind- um við hugsanir þínar.“ Meðan ég bjó í þessu herbergi, hengu myndtir þeirra hjónanna yfir skrifborði mínu, og tíðum horfði ég á þœr. „Hjartans þakkir fyrir allt og allt. En samstarfi okkar er ekki að öllu lokið, að ég held. Til eru leiðir, sem hugs- uninni eru færar. Þú brást hvorki mér né málefninu, með- an við vorum saman. Þú hefur heldur ekki brugðizt hon- um, sem tók við af mér. Berðu börnunum mínum, honum og félaginu okkar hjartanlegar kveðjur mínar. Hugsanir mínar og þrár um heilbrigða þróun þess eru hinar sömu og áður. Allt hvílir á hollustunni við sannleikann. Mamma er hérna líka. Hana langar til að segja fáein orð við þig. Við höfum engu gleymt. Guð blessi þig og alla vinina okk- ar. Síðar ber fundum okkar saman." Einar H. Kvaran nefndi konu sína, að ég lield, ævin- lega „mömmu“, og þetta orð var sagt með íslenzk- um framburði en ei enskum. Nú sleppti frú Bedford höndum mínum. Þá var eins og hjúpur félli af henni og hún virtist aftur vera orðin eins og hún átti að sér. En bráðlega tók hún hendur mínar aftur. Svipur hennar og yfirbragð breyttist nú, svo að mjög minnti á frú Gíslínu, konu Einars H. Kvarans. Þó varð svipbreytingin ekki eins sterk og varð á meðan hann var að tala. Um leið og hún tók nú hendur mínar, heyrði

x

Morgunn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.