Morgunn - 01.12.1953, Side 31
Dr. Westwood
heldur rannsóknum sínum áfram.
★
1 síðasta hefti MORGUNS var birt ritgerð um rannsóknir prests-
ins og lærdómsmannsins, dr. Westwoods, á miðilsgáfu litillar fóstur-
dóttur hans og þeim margvíslegu fyrirbrigðum, sem komu fram hjá
barninu, glaðvakandi. Þeir, sem þá ritgerð lásu, munu minnast þess,
að í upphafi tilraunanna var dr. Westwood enn algerlega andvígur
sálarrannsóknunum og spíritismanum og hugði allt það mál einberan
hégóma og hjátrú trúgjarnra manna. En þegar gáfaðir vinir hans,
sem hann mat mikils sakir vitsmuna og mannkosta, tóku að leggja
að honum að kynna sér málið, fór hann að gera tilraunir heima hjá
sér, með því að hann hafði megnustu ótrú á miðlum og starfi þeirra.
En þá kom óðara í ljós, að Anna litia, fósturdóttir hans, ellefu ára
gömul, var gædd stórfurðulegum miðilshæfileikum.
Dr. Westwood var lengst af í algjörum efa um, hvaðan þessi fyrir-
brigði stöfuðu, og hann vildi í allra lengstu lög forðast að trúa því,
að persónuleikar framliðinna manna stæðu að baki fyrirbrigðunum.
Þegar hann hafði gert tilraunir með Önnu litlu um alllangt skeið,
var honum orðið ljóst, að hér hiytu einhver önnur öfl að vera að
verki en undirvitund hennar, að hér hiyti orsakanna að vera að
leita annars staðar. Tveir persónuleikar, sem nefndu sig Rut og
Italph, gerðu vart við sig í sambandinu, og kváðust hafa verið hrað-
ritarar í Washington. Þau sönnuðu mál sitt á þann hátt, að láta
leiða Önnu litlu, með svo vandlega bundið fyrir augun að hún gat
ekki séð neitt, að ritvél, sem hún kunni vitanlega ekkert á, og undir
stjórn þeirra skrifaði blindað barnið á ritvélina með hraða og full-
kominni leikni, sem þaulæfðir vélritarar einir geta sýnt. Anna litla
var að byrja að læra að leika á slaghörpu. Rut kom með vinkonu
sína úr andaheiminum, og undir stjórn hennar lék litla stúlkan,
með bæði augu algerlega blinduð, með dásamlegri leikni hins þaul-
æfða píanóleikara, á hljóðfærið.
Margs konar sálrænir hæfileikar gerðu vart við sig hjá litlu stúlk-
unni. Með bundið fyrir augun las hún á bók, sem haldið var fyrir
framan hana, mjög dræmt, þegar hún reyndi það sjálf, en með
leikandi hraða, þegar hinar ókunnu vitsmunaverur fengu að hafa
stjórn á henni. Hvert undrið gerðist öðru meira, og hver skýringar-
tilraun dr. Westwoods af annarri hrundi sem markleysa andspænis
staðreyndunum. En með varfærni hins efagjarna manns varðist