Morgunn


Morgunn - 01.12.1953, Side 33

Morgunn - 01.12.1953, Side 33
MORGUNN 111 Hún vann óskorað traust allra, sem kynntust henni.“ Það var árið 1919, að dr. Westwood kynntist Ada Be- sinnet, en þá hafði hann fengið prestakall í borginni, sem hún var búsett í. Fyrir milligöngu annarra hafði hann fengið aðgang að fundi hjá henni, ásamt konu sinni. Ada bjó með frænku sinni, sem hún hafði verið hjá frá barn- æsku, og stjórnaði fundum hennar. Þær bjuggu í allstóru og góðu húsi saman. Heimili þeirra bar vott um menn- ingu og góðan smekk. Ada var viðfeldin í tali og elskuleg í háttum, en var ekki sérlega menntuð kona. Fundurinn hófst. Einn fundargestinn þekkti dr. West- wood ekki þá. Hann var nafnkunnur blaðamaður og átti síðar eftir að vinna merkilegt rannsóknastarf með dr. Westwood í sálrænum málum. Aðrir viðstaddir voru, yfir- dómari við ríkisréttinn, kunnur kaupsýslumaður og verk- fræðingur. Konur þeirra voru með þeim. Þau settust í kring um borðstofuborð í borðstofunni. Það hafði verið dregið út og autt rúm var eftir tvær lausar borðplötur, sem teknar höfðu verið burt. Gestirnir og miðillinn spjölluðu saman nokkra stund, unz ákveðið var að fundurinn skyldi hefjast. Engin tæki eða áhöld voru þarna, nema saman- vafinn kaðall, % þumlunga þykkur, sem lá á borðinu. Grammófónn stóð á gólfinu, 3 fetum til vinstri við miðil- inn, og vinstra megin við hann lágu um 30 hljómplötur á stóli. Fyrir gluggana voru dregin þung tjöld, sem myrkvuðu herbergið. Ada settist við borðið við eyðuna, sem var þar sem plöturnar tvær höfðu verið teknar burt, og studdi höndum á borðið beggja megin eyðunnar. Við grammó- fóninn sat sá, sem átti að draga hann upp og skipta um plötur. Dr. Westwood sat vinstra megin miðilsins beint á móti dómaranum. Karlmenn og kvenfólk sátu á víxl. Þegar er ljósin voru slökkt var byrjað að leika á grammófóninn. Eftir tíu mínútur gekk sá, sem sat við hlið miðilsins, úr skugga um, að hún var fallin í djúpan

x

Morgunn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.