Morgunn


Morgunn - 01.12.1953, Blaðsíða 34

Morgunn - 01.12.1953, Blaðsíða 34
112 MORGUNN trans. Kverkmælt rödd talaði af vörum hennar, og kvaðst vera stjórnandi hennar. Hann talaði sjaldan, en alltaf af vörum hennar, ef hann talaði á annað borð. Fyrstu fyrirbrigðin voru þau, að Ijós, lík geislandi drop- um, svifu um herbergið. Þau sýndust um það bil hálfur annar þumlungur á lengd. Sum þeirra svifu rétt yfir hendi dr. Westwoods og við birtuna af þeim gat hann séð hárin á handarbaki sínu. Nú heyrðist rödd, sem alls ekki virtist koma frá miðlinum sjálfum, syngja með hljómplötunni, sem leikin var, og röddin fyllti herbergið. Röddin kom áreiðanlega ekki frá grammófóninum, enda var engin söngplata leikin. Þá greip önnur rödd inn í sönginn. Sú fyrri var há sópran-rödd, en síðari var djúp alt-rödd. Síðar sungu þessar raddir tvísöng (dúett) saman. Þá söng fyrri röddin aftur og nú var ekki sungið með henni, heldur var blístrað aðdáanlega vel undir sönginn. Þannig hélt fundurinn áfram í um það bil hálfa klukkustund. Nú var hætt að leika á grammófóninn og þá heyrðist skrjáfa í kaðlinum. Rödd stjórnandans sagði: „Kveikið ljósið.“ Ljósið var kveikt, og nú sáu fundargestirnir, að búið var að binda bæði hendur og fætur miðilsins með kaðlinum. Dr. Westwood rannsakaði hnútana og gekk úr skugga um, að Ada hefði alls ekki getað bundið sig þannig sjálf. Óhugsandi var, að nokkur fundargestanna gæti verið henni samsekur um svik. Lítt hugsandi, að nokkur hefði getað komizt inn í herbergið og hjálpað henni, án þess fundargestir yrðu þess varir. Nú skipaði stjórnandinn aftur að slökkva ljósið, og var það gert. Augnabliki síðar sagði hann að kveikt skyldi aftur. Það var gert. Ada lá í djúp- um transi í stólnum sínum, óbundin, og kaðallinn lá saman- lagður á borðinu. Ein röddin, sem talaði, nefndi sig Pansy og kvaðst vera negrastúlka. Hún var mjög gamansöm í háttum og tali. „Skyndilega kallaði dómarinn til mín — segir dr. West- wood — og þakkaði mér fyrir vindil, sem ég hefði gefið sér. Þetta, sem kallaði sig Pansy, hafði tekið vindil úr
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Morgunn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.