Morgunn - 01.12.1953, Síða 47
MORGUNN 125
fremur en hvert annað hræ. 1 svefninum grét ég loks og
vaknaði.
Síðan hefur þessi draumur ekki við mig skilið. Um leið
og ég vaknaði, mundi ég, að lík skáldsins hafði verið
flutt heim og jarðað hér, en í svefnrofunum var sem túlk-
un draumsins væri skotið í huga mér, og ég mundi gömul
samtöl við Kamban, þegar hann sagði: „Það tekur svo
sem 50 ár að koma minum verkum á framfæri." Hann
hafði ekki eingöngu í huga listgildi þeirra, heldur einnig
eða jafnvel öllu fremur þær hugsjónir menningar og friðar,
sem þau áttu að túlka. Um leið og ég vaknaði, var þetta
lifandi fyrir mínum hugskotssjónum og einnig að stofna
skyldi Kambansfélag og reisa Kambansleikhús í Reykja-
vík.
Hugmyndinni hef ég nú komið á framfæri við formann
Leikfélags Reykjavíkur, er sagði mér að Guðmundur
Kamban hefði einmitt bent á að lóð sú í Reykjavik, sem
félagið nú falast eftir, væri heppileg fyrir leikhús.
Reykjavik, 13. nóvember 1953.
Jón Leifs.
Aðrir.
Sálmur, þýddur af séra BÖÐVARI BJARNASYNI.
★
Einna kunnust þeirra, er við sálrænar lækningar fást
nú á tímum, er frú P. Parish í London. Margir hérlendir
menn hafa snúið sér til hennar með beiðni um hjálp. Hún
svarar öllum þeim, sem skrifa henni, setur þeim fyrir