Morgunn - 01.12.1953, Blaðsíða 48
126
MORGUNN
ákveðnar bæna- og hugleiðingastundir og sendir þeim ensk-
an sálm sem fyrirmynd þeirra bæna, er hún óskar að sjúkl-
ingarnir biðji. Þennan sálm hafði séra Böðvar Bjarnason,
prófastur á Hrafnseyri, þýtt nokkuru fyrir andlát sitt.
Séra Böðvar var einkar ljóðhagur maður. Hann sendi
Morgni þessa sálmsþýðing sína, þótt dregizt hafi að birta
hana fyrr en nú.
Láttu mig, Drottinn, lifa þér.
Láttu mig gleyma sjálfum mér.
Kenn þú mér æ, hvers biðja ber
í bænunum fyrir öðrum.
Styrk þú mig æ að starfa hér.
Starfa mig lát til dýrðar þér.
Tendraðu helga tryggð hjá mér,
tryggð við að þjóna öðrum.
Sjálfselsku mína sefa í mér,
svo að hún aldrei lýsi sér,
sízt, þegar fram ég bljúgur ber
bænirnar fyrir öðrum.
Þegar mín ævi þrotin er,
og þú felur nýju störfin mér,
lát mig í auðmýkt líkjast þér:
líkna og hjálpa öðrum.
öðrum að þjóna, eins og ber,
einkenni líf mitt þar og hér.
Láttu mig alltaf líkjast þér,
lifað svo geti eg öðrum.