Morgunn - 01.12.1953, Side 55
MORGUNN
133
allar eigur sínar og komst á vonarvöl. Þessir erfiðu við-
burðir urðu henni svo þungt áfall, að hún varð sturluð,
og meðferðin var þá slík, að hún var bundin niður, og hefur
sennilega verið svo um nokkur ár, en afleiðing þeirrar
meðferðar varð sú, að hún krepptist um hnén og gat aldrei
í fæturna stigið þau þrjátíu ár, sem hún lifði eftir það.
En frá því fólki, er hún var þá hjá, fluttist hún til þessa
manns og var hjá honum og naut þar góðrar meðferðar,
og þá var sturlun hennar lokið. Þessi síðasti húsbóndi
hennar, Lýður Ulugason, lýsti henni svo, að hann hefði
aldrei þekkt göfugri konu. Það var þessi kona, er ég sá
í draumnum, handan við tjaldið. Hún hafði verið þjáninga-
og þrautabarn mikinn hluta ævi sinnar hér í heimi, en nú
var orðin breyting á högum hennar. Þegar mig dreymdi
drauminn, munu hafa verið liðin um tuttugu ár frá andláti
hennar.