Morgunn


Morgunn - 01.12.1953, Side 64

Morgunn - 01.12.1953, Side 64
Prófessor J. B. RHINE skrifar um REIMLEIKA. ★ „Ny Horisont'1 heitir tímarit, sem nýlega hóf göngu sina i Dan- mörk, og er því ætlað að fjalla um hina nýju heimsmynd í náttúru- vísindum, sálarfræði og heimspeki. MORGNI hafa borizt tvö fyrstu eintökin, og af þeim má ætla að tímarit þetta verði mörgum Islend- ingum aufúsugestur. Það er prýðilega læsilegt og kemur víöa við. I 2. tbl. er grein sú eftir próf. Rhine, sem hér fer á eftir. Próf. Rhine er forystumaður um sálarrannsóknir þær, sem kallast parapsychologi og fjalla um margs konar sálræn fyrirbrigði, og hefur rekið víð- tækustu rannsóknir, sem enn hafa verið reknar á fjarhrifunum, telepathie. 1 grein þessari skrifar hann um reimleikana, afturgöng- urnar, og bendir á ýmsar leiðir til aö skýra þau fyrirbæri. Þegar menn fara að sjá það, sem aðrir sjá ekki, eru þeir ýmist kallaðir sjáendur eða geðsjúklingar. Þó þarf hvorugt að vera, því að margir fullkomlega venjulegir og heil- brigðir menn votta, að þeir hafi séð ýmis konar sýnir. Fyrir fjármálamann nokkurn frá Dallas í Texas bar þessa athyglisverðu sýn: Var það draumur, sem iók á sig fasia mynd? Kvöld nokkurt, þegar hann ætlaði að fara að hátta, var frískur og leið að öllu leyti vel, heyrði hann að hand- fangið á svefnherbergishurðinni var hreyft, og þegar hann leit upp, sá hann föður sinn koma inn í herbergið. Þótt faðir hans ætti heima í Kaliforníu og hlyti þess vegna að hafa ferðazt allan daginn, var hann enn í vinnufötum sínum. Sonur hans tók eftir því, að blýantur og tommu-

x

Morgunn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.